Orð hinna vitru

17Hneig eyra þitt og hlusta á orð hinna vitru,
veit fræðslu minni athygli.
18Gott er að þú geymir þau í brjósti þér,
að þau verði sífellt á vörum þér.
19Til þess að traust þitt sé á Drottni
fræði ég þig í dag, já, þig.
20Hef ég ekki ritað þér þrjátíu sinnum
heilræði og fræðslu,
21til þess að gera þér ljósan sannleika, sannleiksorð,
svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð er senda þig?
22 Rændu ekki fátæklinginn af því að hann er fátækur
og níðstu ekki á lítilmagnanum í borgarhliðinu
23 því að Drottinn mun flytja mál þeirra
og ræna þá lífinu er þá ræna.
24 Leggðu ekki lag þitt við reiðigjarnan mann
og eigðu ekki samneyti við hinn skapbráða
25 til þess að þú temjir þér ekki hegðun hans
og leggir snörur fyrir líf þitt.
26 Vertu ekki einn af þeim sem ganga til handsala,
þeim sem ganga í ábyrgð fyrir skuldum.
27 Þegar þú átt ekkert að greiða með,
þá verður hvílan tekin undan þér.
28 Færðu ekki úr stað hin fornu landamerki
sem forfeður þínir hafa sett.
29 Sjáir þú mann vel færan í verki sínu
mun hann veita konungum þjónustu sína
en ekki þjóna ótignum mönnum.