Biblíulestur – 15. júlí – 5Mós 4.32–40
Spyrðu um fyrri tíma, sem voru fyrir þína tíð, allt frá þeim degi að Guð skapaði manninn á jörðinni, kannaðu heimskauta á milli: Hefur nokkru sinni orðið jafnstórfenglegur atburður og þessi eða heyrst um nokkuð þessu líkt? Hefur nokkur þjóð heyrt Guð tala hátt úr eldi, á sama hátt og þú heyrðir, og þó haldið lífi? Eða hefur nokkur guð reynt að sækja sér þjóð frá annarri þjóð með máttarverkum, táknum og undrum og með stríði, sterkri hendi og útréttum armi og miklum skelfingum eins og Drottinn, Guð ykkar, gerði fyrir augum ykkar í Egyptalandi? Þér var leyft að sjá þetta svo að þú játaðir að Drottinn er Guð og enginn annar en hann. Af himni lét hann þig heyra raust sína til þess að leiðbeina þér. Á jörðu sýndi hann þér sinn mikla eld og úr eldinum heyrðir þú orð hans. Af því að hann elskaði forfeður þína valdi hann niðja þeirra. Hann leiddi þig sjálfur út úr Egyptalandi með sínum mikla mætti. Hann ruddi úr vegi þínum þjóðum, sem voru fjölmennari og voldugri en þú, til þess að fara með þig inn í land þeirra og gefa þér það að erfðalandi eins og nú er orðið.
Í dag skalt þú játa og festa þér í huga að Drottinn er Guð á himnum uppi og á jörðu niðri og enginn annar. Haltu því lög hans og ákvæði sem ég set þér nú í dag svo að þér vegni vel og síðan niðjum þínum og þú lifir lengi í landinu sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér til ævarandi eignar.
Biblíulestur 9. apríl – Heb 7.1-17
Prestur Guðs 1 Melkísedek þessi var konungur í Salem og prestur Guðs Hins hæsta. Hann gekk á móti Abraham og blessaði hann þegar hann sneri heimleiðis eftir að hafa unnið [...]
Biblíulestur 8. apríl – Heb 6.1-20
1 Þess vegna skulum við sleppa byrjendafræðslunni um Krist og snúa okkur að fræðslunni fyrir lengra komna. Við förum ekki að byrja aftur á undirstöðuatriðum eins og að trúa á [...]
Biblíulestur 7. apríl – Mrk 10:35-45
Sá er mikill vill verða 35 Þá komu til Jesú Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: „Meistari, okkur langar að þú gerir fyrir okkur það sem við [...]
Biblíulestur 6. apríl – Slm 68.1-15
1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. 2Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans. 3Þeir munu feykjast burt líkt og reykur feykist burt, eins og [...]
Biblíulestur 5. apríl – Heb 5.1-14
1 Sérhver æðsti prestur er tekinn úr flokki manna og settur í þágu manna til að þjóna frammi fyrir Guði og bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir. 2 Hann [...]
Biblíulestur 4. apríl – Heb 4.1-16
1 Fyrirheitið um að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkurt ykkar verði til þess að dragast aftur úr. 2 Fagnaðarerindið var okkur boðað eigi síður [...]