Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 16. júlí – 5Mós 4.41–49

Þá veitti Móse þremur borgum austan við Jórdan sérstöðu. Til þeirra gat hver sá flúið og haldið lífi sem án ásetnings varð manni að bana og hafði ekki sýnt honum fjandskap áður. Borgirnar voru Beser á hásléttunni í eyðimörkinni fyrir niðja Rúbens, Ramót í Gíleað fyrir Gað og Gólan í Basan fyrir Manasse.
Þetta er lögmálið sem Móse lagði fyrir Ísraelsmenn. Þetta eru þau fyrirmæli, lög og ákvæði sem Móse boðaði Ísraelsmönnum þegar þeir fóru út úr Egyptalandi og voru handan Jórdanar í dalnum gegnt Bet Peór, í landi Síhons Amorítakonungs sem ríkti í Hesbon. Móse og Ísraelsmenn höfðu fellt hann þegar þeir fóru út úr Egyptalandi. Þá höfðu þeir tekið land hans til eignar ásamt landi Ógs, konungs í Basan. Þeir höfðu slegið eign sinni á land hans og land Ógs, konungs í Basan, land beggja konunga Amoríta austan við Jórdan, landið frá Aróer, sem liggur í jaðri Arnondalsins, allt að Síonarfjalllendi, það er Hermon, og allt Arabaláglendið austan við Jórdan, að Arabavatninu undir Pisgahlíðum.

Biblíulestur 15. apríl – Mal 1.6-14

Um guðsþjónustuna 6 Sonur heiðrar föður sinn og þjónn húsbónda sinn. Ef ég er faðir, hvar er þá virðingin sem mér ber? Ef ég er húsbóndi, hvar er þá lotningin [...]

Biblíulestur 14. apríl – Mrk 14:3-9

Gott verk gerði hún 3 Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut [...]

Biblíulestur 13. apríl – Slm 68.16-26

16Fjall Guðs er Basansfjall, tindótt fjall er Basansfjall. 17Hví lítið þér, tindar, öfundarauga fjallið er Guð hefur kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn mun ætíð búa? 18Vagnar Guðs eru [...]

Biblíulestur 12. apríl – Mal 1.1-5

1 Spádómur frá Guði. Orð Drottins til Ísraels fyrir munn Malakí. Guð elskar Ísrael 2 Ég elska ykkur, segir Drottinn. En þið spyrjið: „Hvernig hefur þú sýnt okkur kærleika þinn?“ [...]

Biblíulestur 11. apríl – Heb 8.1-13

Æðsti prestur nýs sáttmála 1 Höfuðinntak þess sem sagt hefur verið er þetta: Við höfum þann æðsta prest er settist til hægri handar við hásæti hátignarinnar á himnum. 2 Hann [...]

Biblíulestur 10. apríl – Heb 7.18-28

18 Hið fyrra boðorð er þar með ógilt af því að það var vanmáttugt og gagnslaust. 19 Lögmálið gerði ekkert fullkomið. En nú höfum við öðlast betri von sem leiðir [...]

Fara efst