Biblíulestur – 13. júlí – Lúk 6.36–42
Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur.
Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“
Þá sagði Jesús þeim og líkingu: „Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? Ekki er lærisveinn meistaranum fremri en hver sem er fullnuma verður eins og meistari hans. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Hvernig færð þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð ekki bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
Biblíulestur 28. mars – Sak 14.1-11
Dagur Drottins 1 Sjá, sá dagur kemur frá Drottni að herfangi þínu verður skipt í þér miðri. 2 Ég mun safna öllum þjóðunum til hernaðar gegn Jerúsalem, borgin verður tekin, [...]
Biblíulestur 27. mars – Sak 13.1-9
1 Á þeim degi opnast lind fyrir Davíðs ætt og Jerúsalembúa til að þvo burt syndir og óhreinleika. 2 Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, afmái ég nöfn skurðgoðanna úr [...]
Biblíulestur 26. mars – Sak 12.1-14
Spádómur um Jerúsalem 1 Spádómur. Orð Drottins um Ísrael. Svo segir Drottinn sem þandi út himininn, grundvallaði jörðina og myndaði andann í brjósti mannsins: 2 Ég geri Jerúsalem að vímuskál [...]
Biblíulestur 25. mars – Sak 11.1-17
1Ljúk upp hliðum þínum, Líbanon, svo að eldurinn geti eytt sedrustrjám þínum. 2Kveina, kýprusviður, nú er sedrustréð fallið. Barmið yður, eikur Basans, burtu er skógurinn mikli. 3Heyr kveinstafi smalanna. Sæmd [...]
Biblíulestur 24. mars – Jóh 8.42-51
42 Jesús svaraði: „Ef Guð væri faðir yðar munduð þér elska mig því að frá Guði er ég út genginn og kominn. Ekki hef ég sent mig sjálfur. Það er [...]
Biblíulestur 23. mars – Slm 67.1-7
1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð. 2Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor (Sela) 3svo að þekkja megi veg þinn á jörðinni [...]