Dagur Drottins

1 Sjá, sá dagur kemur frá Drottni að herfangi þínu verður skipt í þér miðri. 2 Ég mun safna öllum þjóðunum til hernaðar gegn Jerúsalem, borgin verður tekin, húsin rænd og konunum nauðgað. Helmingur borgarbúa verður herleiddur en ekki verður upprættur sá hluti þeirra sem eftir verður í borginni. 3 Þá mun Drottinn fara og berjast við þessar þjóðir eins og hann gerir á orrustudegi. 4 Og á þeim degi munu fætur hans staðnæmast á Olíufjallinu austur af Jerúsalem. Og Olíufjallið mun klofna í miðju frá austri til vesturs. Þar verður firnavíður dalur er helmingur fjallsins færist í norður en hinn í suður. 5 Og þið skuluð flýja í fjalldal minn, en dalurinn nær allt til Asal, flýja eins og þið flýðuð jarðskjálftann á dögum Ússía Júdakonungs. En Drottinn, Guð minn, mun koma og með honum allir heilagir.
6 Á þeim degi verður hvorki hlý sólarbirta né svalt mánaskin, 7 það verður samfelldur dagur og á því kann Drottinn einn skil. Ekki dagur, ekki nótt og jafnvel að kvöldinu verður bjart. 8 Á þeim degi mun ferskt vatn streyma frá Jerúsalem, að hálfu í austurhafið og að hálfu í vesturhafið, jafnt sumar sem vetur. 9 Drottinn mun þá verða konungur yfir veröldinni allri. Á þeim degi mun Drottinn verða einn og nafn hans eitt.
10 Allt landið verður slétt eins og Jórdanardalur allt frá Geba til Rimmon suður af Jerúsalem, en hún mun gnæfa hátt, óbifanleg á stað sínum, frá Benjamínshliði, þangað sem fyrra hliðið var, allt að hornhliðinu og frá Hananelturni til konungsvínþrónna. 11 Menn munu búa þar og bannfæring kemur ekki yfir hana framar. Jerúsalem mun verða óhult.