Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 12. júlí – Slm 103.11–22

heldur svo hár sem himinninn er yfir jörðinni,
svo voldug er miskunn hans við þá er óttast hann.
Svo langt sem austrið er frá vestrinu,
svo langt hefur hann fjarlægt afbrot vor frá oss.
Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum,
eins hefur Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann.
Því að hann þekkir eðli vort,
minnist þess að vér erum mold.
Dagar mannsins eru sem grasið,
hann blómgast sem blómið á mörkinni,
þegar vindur blæs á hann er hann horfinn
og staður hans þekkir hann ekki framar.
En miskunn Drottins við þá er óttast hann
varir frá eilífð til eilífðar
og réttlæti hans nær til barnabarnanna,
þeirra er varðveita sáttmála hans
og muna að breyta eftir boðum hans.
Drottinn hefur reist hásæti sitt á himnum
og konungdómur hans drottnar yfir alheimi.
Lofið Drottin, þér englar hans,
þér voldugu hetjur er framkvæmið boð hans,
er þér heyrið hljóminn af orði hans.
Lofið Drottin, allar hersveitir hans,
þjónar hans er framkvæmið vilja hans.
Lofið Drottin, öll verk hans,
á hverjum stað í ríki hans.
Lofa þú Drottin, sála mín.

Biblíulestur 22. mars – Sak 10.1-12

Heimförin 1 Biðjið Drottin um regn þegar regntíð seinkar, Drottin, sem eldingarnar sendir, um regn og skúrir. Hann gefur mönnum brauð og gróður jarðar. 2Orð húsguðanna voru ómerk og spásagnamennirnir [...]

Biblíulestur 21. mars – Sak 9.1-17

Gegn þjóðunum 1 Spádómur. Orð Drottins mun dveljast í Hadraklandi og Damaskus því að sjónir allra manna hvíla á Drottni eins og augu Ísraels ætta. 2Einnig í Hamat, sem er [...]

Biblíulestur 20. mars – Sak 8.18-23

18 Orð Drottins kom til mín: 19 Svo segir Drottinn allsherjar: Fastan í fjórða mánuði, fastan í fimmta mánuði, fastan í sjöunda mánuði og fastan í hinum tíunda verða ætt [...]

Biblíulestur 19. mars – Sak 8.9-17

9 Svo segir Drottinn allsherjar: Herðið upp hugann, þið sem heyrið á þessum dögum orð af munni spámannanna sem uppi voru þegar grundvöllur var lagður að endurbyggingu musterisins, húss Drottins [...]

Biblíulestur 18. mars – Sak 8.1-8

Fyrirheit um endurreisn Jerúsalem 1 Orð Drottins allsherjar kom til mín: 2 Svo segir Drottinn allsherjar: Ég er gagntekinn af vandlæti vegna Síonar, ég loga af vandlæti hennar vegna. 3Svo [...]

Biblíulestur 17. mars – Mrk 10.46-52

Blindur beiningamaður 46 Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. 47 [...]

Fara efst