Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 25. júlí – 5Mós 8.7–20

Drottinn, Guð þinn, mun leiða þig inn í gott land, inn í land með lækjum, lindum og uppsprettum sem streyma fram í dölum og á fjöllum, inn í land þar sem nóg er af hveiti og byggi, vínviði, fíkjutrjám og granateplatrjám, inn í land með olíuviði og hunangi, inn í land þar sem þú þarft ekki að neyta matar í fátækt og þar sem þig mun ekkert skorta og þar sem steinarnir eru járn og þú getur brotið eir úr fjöllunum.
Þegar þú hefur etið og ert orðinn mettur skaltu lofa Drottin, Guð þinn, fyrir landið góða sem hann hefur gefið þér. Gæt þess þá að þú gleymir ekki Drottni, Guði þínum, og hættir að hlýða boðum hans, ákvæðum og lögum sem ég set þér í dag.
Þegar þú hefur etið og ert orðinn mettur og hefur reist glæsileg hús og hefur komið þér fyrir og þegar nautpeningi þínum og sauðfé fjölgar og þér græðist gull og silfur og allar eigur þínar margfaldast, gæt þess þá að fyllast ekki ofmetnaði og gleyma Drottni, Guði þínum, sem leiddi þig út úr Egyptalandi, út úr þrælahúsinu. Hann leiddi þig yfir hina miklu og ógnvekjandi eyðimörk þar sem eitursnákar og sporðdrekar voru, gegnum skrælnað land þar sem ekki fannst vatnsdropi en handa þér lét hann vatn streyma úr tinnuhörðum kletti. Í eyðimörkinni gaf hann þér manna að eta sem feður ykkar þekktu ekki svo að hann gæti auðmýkt þig og reynt þig og síðan gert vel við þig.
Þú skalt ekki hugsa með þér: „Ég hef aflað þessara auðæfa með eigin afli og styrk handar minnar.“ Minnstu heldur Drottins, Guðs þíns, því að það var hann sem gaf þér styrk til að afla auðs til þess að standa við sáttmálann sem hann sór feðrum þínum eins og hann gerir enn í dag.
En ef þú gleymir Drottni, Guði þínum, fylgir öðrum guðum, þjónar þeim og tilbiður, þá votta ég í dag að ykkur mun gereytt eins og þjóðunum sem Drottinn eyddi fyrir ykkur. Þannig verður ykkur eytt vegna þess að þið hlýdduð ekki rödd Drottins, Guðs ykkar.

Biblíulestur 8. júní – Slm 71.1-8

1Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. 2Frelsa mig, bjarga mér eftir réttlæti þínu, hneig eyra þitt að mér og hjálpa mér. 3Ver mér verndarbjarg, [...]

Biblíulestur 6. júní – Lúk 7.18-35

Ert þú sá sem koma skal? 18 Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Jóhannes kallaði þá til sín tvo lærisveina sína, 19 sendi þá til Drottins og lét spyrja: [...]

Biblíulestur 5. júní – Lúk 7.1-17

Mæl þú eitt orð 1 Þá er Jesús hafði lokið við að tala við fólkið fór hann til Kapernaúm. 2 Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón sem hann mat mikils. Þjónninn var [...]

Biblíulestur 4. júní – Ester 9.20-10.3

9. kafli Ákvarðanir um púrímhátíð 20 Þessa atburði skrásetti Mordekaí. Hann sendi bréf til allra Gyðinga í öllum héruðum konungsríkis Xerxesar, jafnt nálægum sem fjarlægum, 21 til að gera þeim [...]

Biblíulestur 3. júní – Ester 8.15-9.19

8. kafli 15 Mordekaí gekk út frá konungi í konunglegum skrúða, fjólubláum og hvítum. Hann bar stóra gullkórónu á höfði og var klæddur möttli úr drifhvítu og purpurarauðu líni. Og [...]

Fara efst