Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 26. júlí – Okv 24.23–34

Þessi spakmæli eru líka eftir spekinga:
Hlutdrægni í dómi er röng.
Þeim sem segir við hinn seka: „Þú hefur rétt fyrir þér,“
honum formæla menn og þjóðir fordæma hann.
Þeim sem fella réttan úrskurð mun farnast vel,
þeir munu hljóta ríkulega blessun.
Að veita rétt svör
er eins og að gefa koss.
Sinntu útiverkunum og ljúktu þeim á akrinum,
síðan getur þú byggt þér hús.
Vitnaðu ekki gegn náunga þínum án gildrar ástæðu,
eða vilt þú svíkja með orðum þínum?
Segðu ekki: „Eins og hann gerði mér,
eins ætla ég að gera honum,
ég ætla að veita manninum makleg málagjöld.“
Ég gekk fram hjá akri letingja nokkurs,
fram hjá víngarði heimsks manns.
Hann var allur vaxinn þistlum,
hann var alþakinn netlum
og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
Ég sá þetta og veitti því athygli,
horfði á það og lét mér það að kenningu verða:
Sofa ögn enn, blunda ögn enn,
leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,
þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi
og skorturinn eins og vopnaður maður.

Biblíulestur 14. júní – Lúk 9.7-27

Heródes vill sjá Jesú 7 En Heródes fjórðungsstjóri frétti allt sem gerst hafði og vissi ekki hvað hann átti að halda því að sumir sögðu að Jóhannes væri risinn upp [...]

Biblíulestur 13. júní – Lúk 8.40-9.6

8. kafli Trú þú aðeins 40 En er Jesús kom aftur fagnaði mannfjöldinn honum því að allir væntu hans. 41 Þá kom þar maður, Jaírus að nafni, forstöðumaður samkundunnar. Hann [...]

Fara efst