Biblíulestur – 16. ágúst – Slm 105.16–25
Þegar hann kallaði hungur yfir landið,
svipti þá öllum birgðum brauðs,
sendi hann mann á undan þeim.
Jósef var seldur sem þræll,
þeir særðu fætur hans með fjötrum,
settu háls hans í járn
þar til orð hans rættust
og orð Drottins sönnuðu mál hans.
Konungur sendi boð og lét leysa hann,
drottnari þjóðanna leysti fjötra hans,
gerði hann herra húss síns
og stjórnanda allra eigna sinna
svo að hann gæti leiðbeint hirðmönnum að vild
og kennt öldungum hans speki.
Ísrael kom til Egyptalands,
Jakob varð gestur í landi Kams.
Drottinn jók stórum frjósemi lýðs síns,
gerði hann fjölmennari en fjandmenn hans.
Hann sneri hjarta Egypta til haturs á lýð sínum,
til lævísi gegn þjónum sínum.
Biblíulestur 23. október – Lúk 23.50-24.12
23. Kafli Lagður í gröf 50 Maður er nefndur Jósef. Hann var ráðsherra, góður maður og réttvís 51 og hafði ekki samþykkt ráð þeirra né athæfi. Hann var frá Arímaþeu, [...]
Biblíulestur 22. október – Lúk 23.26-49
Krossfestur 26 Þegar þeir leiddu Jesú út tóku þeir Símon nokkurn frá Kýrene, er kom utan úr sveit, og lögðu krossinn á hann að hann bæri hann eftir Jesú. 27 [...]
Biblíulestur 21. október – Lúk 23.8-25
8 En Heródes varð næsta glaður er hann sá Jesú því hann hafði lengi langað að sjá hann þar eð hann hafði heyrt frá honum sagt. Vænti hann nú að [...]
Biblíulestur 20. október – Mark 10.17-27
Eins er þér vant 17 Þegar Jesús var að leggja af stað kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: „Góði meistari, hvað á ég að gera [...]
Biblíulestur 19. október – Slm 78.21-37
21Drottinn heyrði þetta og reiddist, eldur blossaði upp gegn Jakobi og reiði brann gegn Ísrael 22 því að þeir trúðu ekki Guði eða treystu hjálp hans. 23 Þá bauð hann [...]
Biblíulestur 18. október – Lúk 22.63-23.7
22. Kafli Jesús hæddur 63 En þeir menn sem gættu Jesú hæddu hann og börðu, 64 huldu andlit hans og sögðu: „Þú ert spámaður, segðu hver sló þig.“ 65 Og [...]