Biblíulestur – 15. ágúst – 5Mós 11.1–15
Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, og ætíð halda fyrirmæli hans, lög, ákvæði og skipanir. Í dag skuluð þið játa að það voru ekki börn ykkar sem sáu og hlutu uppeldi Drottins, Guðs ykkar, heldur þið sem sáuð tign hans, máttuga hönd hans og útréttan arm, táknin og afrekin sem hann vann mitt í Egyptalandi gegn faraó, konungi Egyptalands, og öllu landi hans, hvernig hann fór með her Egypta, hesta þeirra og hestvagna, hvernig hann lét öldur Sefhafsins steypast yfir þá þegar þeir eltu ykkur. Drottinn gereyddi þeim í eitt skipti fyrir öll.
Þið sáuð hvað hann gerði fyrir ykkur í eyðimörkinni þar til þið komuð til þessa staðar og hvernig hann fór með Datan og Abíram, syni Elíabs Rúbenssonar, þegar jörðin glennti upp ginið og gleypti þá ásamt fjölskyldum þeirra, tjöldum og öllum búfénaði sem þeim fylgdi. Með eigin augum sáuð þið öll hin miklu máttarverk sem Drottinn vann.
Haldið þess vegna öll boðin sem ég set ykkur í dag svo að þið fáið kraft til að komast inn í og fáið til eignar landið sem þið eruð að halda til og slá eign ykkar á, og svo að þið verðið langlíf í landinu sem Drottinn hét að gefa forfeðrum ykkar og niðjum þeirra, landi sem flýtur í mjólk og hunangi. Því að landið, sem þú ert í þann veginn að fara inn í til þess að slá eign á, er ekki eins og Egyptaland sem þið fóruð frá. Þar þurftir þú að vökva akurinn með fæti þínum eins og kálgarð þegar þú hafðir sáð í hann korni. En landið, sem þið eruð í þann veginn að fara inn í til að taka til eignar, er land með fjöllum og dölum sem drekkur í sig regnið sem fellur af himni. Það er land sem Drottinn, Guð þinn, annast: Augu Drottins, Guðs þíns, hvíla sífellt á því frá ársbyrjun til ársloka.
Ef þið hlýðið skipunum mínum sem ég legg fyrir ykkur í dag, elskið Drottin, Guð ykkar, og þjónið honum af öllu hjarta og allri sálu mun ég gefa landi ykkar regn á réttum tíma, haustregn og vorregn, svo að þú getir skorið upp korn, vín og olíu. Og ég mun sjá búfé þínu fyrir grasi í haglendi þínu og þú munt eta og verða mettur.
Biblíulestur 17. október – Lúk 22.47-62
Tekinn höndum 47 Meðan Jesús var enn að tala kom flokkur manna og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann. 48 [...]
Biblíulestur 16. október – Lúk 22.31-46
Ég hef beðið fyrir þér 31 Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. 32 En ég hef beðið fyrir [...]
Biblíulestur 15. október – Jak 5.7-20
Þreyið og biðjið 7 Þreyið því, systkin,[ þangað til Drottinn kemur. Sjáið akuryrkjumanninn! Hann bíður eftir hinum dýrmæta ávexti jarðarinnar og þreyir eftir honum þangað til hann hefur fengið haustregn [...]
Biblíulestur 14. október – Jak 4.11-5.6
4. Kafli Dæmið ekki 11 Talið ekki illa hvert um annað, systkin.[ Sá sem talar illa um bróður sinn eða systur[ eða dæmir þau,[ talar illa um lögmálið og dæmir [...]
Biblíulestur 13. október – Mark 9.17-29
17 En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: „Meistari, ég færði til þín son minn sem er haldinn illum anda svo að hann getur ekki talað. 18 Hvar sem andinn grípur [...]
Biblíulestur 12. október – Slm 78.9-20
9Niðjar Efraíms, vopnaðir boga, flýðu á orrustudeginum. 10Þeir héldu ekki sáttmála Guðs og vildu ekki fylgja lögum hans, 11gleymdu stórvirkjum Drottins og máttarverkunum sem hann lét þá sjá. 12Hann drýgði [...]