Tekinn höndum

47 Meðan Jesús var enn að tala kom flokkur manna og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann. 48 Jesús sagði við hann: „Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?“
49 Þeir sem með honum voru sáu að hverju fór og sögðu: „Drottinn, eigum við ekki að bregða sverði?“ 50 Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað.
51 Þá sagði Jesús: „Hér skal staðar nema.“ Og hann snart eyrað og læknaði hann.
52 Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana sem komnir voru á móti honum: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja? 53 Daglega var ég með ykkur í helgidóminum og þið lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er ykkar tími, nú ræður máttur myrkranna.“

Pétur afneitar

54 En þeir tóku Jesú höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar. 55 Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann og Pétur settist meðal þeirra. 56 En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: „Þessi maður var líka með honum.“
57 Því neitaði hann og sagði: „Kona, ég þekki hann ekki.“
58 Litlu síðar sá annar maður Pétur og sagði: „Þú ert líka einn af þeim.“
En Pétur svaraði: „Nei, maður minn, það er ég ekki.“
59 Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: „Víst var þessi líka með honum enda Galíleumaður.“
60 Pétur mælti: „Ekki skil ég hvað þú átt við, maður.“
Og jafnskjótt sem hann sagði þetta gól hani. 61 Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins er hann mælti við hann: „Áður en hani galar í dag muntu þrisvar afneita mér.“ 62 Og hann gekk út og grét beisklega.