Biblíulestur – 17. ágúst – Lúk 16.1–9
Enn sagði Jesús við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann og var honum sagt að ráðsmaðurinn sóaði eigum hans. Ríki maðurinn lét kalla ráðsmanninn fyrir sig og sagði við hann: Hvað er þetta er ég heyri um þig? Gerðu grein fyrir störfum þínum því að þú getur ekki verið ráðsmaður lengur. Ráðsmaðurinn sagði þá við sjálfan sig: Hvað á ég að gera fyrst húsbóndi minn sviptir mig ráðsmennskunni? Ekki orka ég að grafa og skömm þykir mér að betla. Nú sé ég hvað ég geri til þess að menn taki við mér í hús sín þegar ég verð sviptur ráðsmennskunni.
Hann kallaði nú á skuldunauta húsbónda síns, hvern og einn. Við þann fyrsta sagði hann: Hve mikið skuldar þú húsbónda mínum? Hann svaraði: Hundrað kvartil viðsmjörs. Hann mælti þá við hann: Tak skuldabréf þitt, set þig niður og skrifa sem skjótast fimmtíu. Síðan sagði hann við annan: En hvað skuldar þú? Hann svaraði: Hundrað tunnur hveitis. Og hann sagði honum: Tak þú skuldabréf þitt og skrifa áttatíu.
Og húsbóndinn hrósaði svikula ráðsmanninum fyrir að hafa breytt kænlega. Því að börn þessa heims eru kænni í skiptum við sína kynslóð en börn ljóssins.
Og ég segi ykkur: Notið hinn rangláta mammón til þess að eignast vini sem taki við ykkur í eilífar tjaldbúðir þegar hann er uppurinn.
Biblíulestur 29. október – Ób 15-21
15Dagur Drottins vofir yfir öllum þjóðum. Eins og þú breyttir við aðra, þannig verður breytt við þig. Verk þín munu koma sjálfum þér í koll. 16Eins og þér drukkuð á [...]
Biblíulestur 28. október – Ób 1-14
Eyðing Edómíta 1Vitrun Óbadía. Tíðindi hafa borist frá Drottni og boðberi er sendur til þjóðanna: „Komum nú. Herjum á Edómíta.“ Svo segir Drottinn Guð um Edóm: 2Þig geri ég smæstan [...]
Biblíulestur 27. október – Jóh 9.1-11
Verk Guðs opinber 1 Á leið sinni sá Jesús mann sem var blindur frá fæðingu. 2 Lærisveinar hans spurðu hann: „Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans fyrst [...]
Biblíulestur 26. október – Okv 26.1-14
1Eins og snjór um sumar eða regn um uppskeru, svo illa á sæmd við heimskan mann. 2Eins og spörfugl hlýtur að flögra og svala að fljúga, eins er um óverðskuldaða [...]
Biblíulestur 25. október – Lúk 24.36-53
Friður sé með yður 36 Nú voru þau að tala um þetta og þá stendur hann sjálfur meðal þeirra og segir við þau: „Friður sé með yður!“[ 37 En þau [...]
Biblíulestur 24. október – Lúk 24.13-35
Vertu hjá okkur 13 Tveir þeirra fóru þann sama dag til þorps nokkurs sem er um sextíu skeiðrúm[ frá Jerúsalem og heitir Emmaus. 14 Þeir ræddu sín á milli um [...]