Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 24. ágúst – Lúk 19.41–48

Og er Jesús kom nær og sá borgina grét hann yfir henni og sagði: „Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum. Því að þeir dagar munu koma yfir þig að óvinir þínir munu gera virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu. Þeir munu leggja þig að velli og börn þín sem í þér eru og ekki láta standa stein yfir steini í þér vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma.“
Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja og mælti við þá: „Ritað er:
Hús mitt á að vera bænahús
en þér hafið gert það að ræningjabæli.“

Daglega var hann að kenna í helgidóminum en æðstu prestarnir og fræðimennirnir, svo og fyrirmenn þjóðarinnar, leituðust við að ráða hann af dögum en fundu eigi hvað gera skyldi því að allt fólkið vildi ákaft hlýða á hann.

Biblíulestur 10. desember – 4Mós 10.11-36

Lagt af stað frá Sínaí 11 Á tuttugasta degi annars mánaðar hóf skýið sig upp frá sáttmálstjaldinu. 12 Þá lögðu Ísraelsmenn af stað frá Sínaíeyðimörkinni í þeirri röð sem ákveðin [...]

Biblíulestur 7. desember – Slm 80.1-8

1 Til söngstjórans. Liljulag. Asafsvitnisburður. Sálmur. 2Hirðir Ísraels, hlýð á, þú, sem leiðir Jósef eins og hjörð. Þú, sem ríkir yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð 3fyrir Efraím, Benjamín og [...]

Biblíulestur 6. desember – Fílm 1-25

Kveðja 1 Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir okkar heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni, Fílemon, 2svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum sem kemur [...]

Biblíulestur 5. desember – Júd 17-25

Varnaðarorð 17 En þið elskuðu, minnist þeirra orða sem postular Drottins vors Jesú Krists hafa áður talað. 18 Þeir sögðu við ykkur: „Á síðasta tíma munu koma spottarar sem stjórnast [...]

Fara efst