Biblíulestur – 23. ágúst – Slm 105.26–35
Hann sendi Móse, þjón sinn,
og Aron sem hann hafði valið sér.
Þeir gerðu tákn hans í Egyptalandi
og undur í landi Kams.
Hann sendi sorta og myrkvaði landið
en þeir þrjóskuðust gegn boðum hans.
Hann breytti vötnum þeirra í blóð
og drap fiska þeirra,
land þeirra varð kvikt af froskum
alla leið inn í herbergi konungs.
Hann bauð og þá komu flugur,
mývargur um allt land þeirra.
Hann sendi hagl fyrir regn,
logandi eld yfir land þeirra,
sló niður vínvið þeirra og fíkjutré
og braut niður trén í landi þeirra.
Hann bauð og engisprettur komu,
lirfur sem ekki varð tölu á komið,
sem átu allar jurtir í landi þeirra,
allan ávöxt á ökrum þeirra.
Biblíulestur 4. desember – Júd 1-16
Kveðja 1 Júdas, þjónn Jesú Krists, bróðir Jakobs, heilsar þeim sem Guð faðir elskar og hefur kallað og Jesús Kristur varðveitir. Að misnota náð Guðs 2 Miskunn, friður og kærleiki [...]
Biblíulestur 3. desember – 2Kon 25.18-30
Júdamenn herleiddir til Babýlonar 18 Foringi lífvarðarins tók einnig Seraja yfirprest til fanga, Sefanja prest, sem næstur honum gekk, og hliðverðina þrjá. 19 Úr borginni tók hann hirðmann þann sem [...]
Biblíulestur 2. desember – 2Kon 24.18-25.17
24. Kafli Sedekía Júdakonungur 18 Sedekía var tuttugu og eins árs þegar hann varð konungur og ríkti í Jerúsalem ellefu ár. Móðir hans hét Hamútal Jeremíadóttir frá Líbna. 19 Hann [...]
Biblíulestur á fyrsta sunnudegi í aðventu – Lúk 4.16-21
16 Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. 17 Var honum fengin [...]
Biblíulestur 30. nóvember – Okv 26.15-28
15Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en honum er um megn að bera hana upp að munninum. 16Latur maður þykist vitrari en sjö sem veita viturleg ráð. 17Sá sem [...]
Biblíulestur 29. nóvember – 2Kon 24.8-17
Jójakín Júdakonungur 8 Jójakín var átján ára þegar hann varð konungur og ríkti í Jerúsalem þrjá mánuði. Móðir hans hét Nehústa Elnatansdóttir frá Jerúsalem. 9 Hann gerði það sem illt [...]