24. Kafli

Sedekía Júdakonungur

18 Sedekía var tuttugu og eins árs þegar hann varð konungur og ríkti í Jerúsalem ellefu ár. Móðir hans hét Hamútal Jeremíadóttir frá Líbna. 19 Hann gerði það sem illt var í augum Drottins eins og Jójakím. 20 Vegna reiði Drottins fór þannig fyrir Jerúsalem og Júda og þar kom að hann rak þau frá augliti sínu.

25. Kafli

Fall Jerúsalem

Sedekía gerði uppreisn gegn Babýloníukonungi.[
1 Á níunda stjórnarári Sedekía bar svo við á tíunda degi tíunda mánaðar að Nebúkadnesar Babýloníukonungur kom til Jerúsalem með allan her sinn og settist um hana. Þeir reistu árásarvirki umhverfis 2 og var borgin umsetin til ellefta stjórnarárs Sedekía. 3 Á níunda degi í fjórða mánuðinum, þegar hungursneyðin var orðin mikil í borginni og enga fæðu að hafa handa íbúunum, 4 var borgarmúrinn rofinn. Um nóttina flýðu allir vopnfærir menn gegnum hliðið milli múranna tveggja gegnt garði konungs. Tókst þeim og konungi að flýja, þó að Kaldear umkringdu borgina, og héldu í átt til Arabasléttunnar. 5 En hermenn Kaldea veittu konungi eftirför og náðu honum á Jeríkósléttunni. Þá hafði allur her hans yfirgefið hann og tvístrast.
6 Þeir tóku konunginn og fóru með hann til Babýloníukonungs í Ribla sem kvað upp dóm yfir honum. 7 Hann lét hálshöggva syni Sedekía fyrir augum hans og síðan stinga úr honum augun, setja hann í hlekki og flytja til Babýloníu.

Musterið lagt í eyði

8 Á sjöunda degi fimmta mánaðar, á nítjánda stjórnarári Nebúkadnesars Babýloníukonungs, kom Nebúsaradan, foringi lífvarðarins og hirðmaður konungs, til Jerúsalem. 9 Hann lagði eld að musteri Drottins, húsi konungs og öllum öðrum húsum í Jerúsalem. Hann brenndi öll vegleg hús. 10 Hermenn Kaldea, sem foringi lífvarðarins stjórnaði, rifu niður múrana umhverfis Jerúsalem. 11 Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, flutti þá sem eftir voru í borginni til Babýloníu, sem og liðhlaupana sem gengið höfðu Babýloníukonungi á hönd og þá sem eftir voru af handverksmönnunum. 12 Foringi lífvarðarins skildi aðeins eftir þá fátækustu til að erja víngarða og akra.
13 Eirsúlurnar í musteri Drottins, vagngrindurnar og eirhafið í musteri Drottins brutu Kaldear í sundur og fluttu eirinn til Babýlonar. 14 Þeir tóku með sér kerin, skóflurnar, skarbítana, skálarnar og öll eiráhöldin sem notuð voru við guðsþjónustuna. 15 Foringi lífvarðarins tók einnig eldpönnurnar og skálarnar sem voru úr gulli og silfri. 16Báðar súlurnar, hafið og vagngrindurnar, sem Salómon hafði látið gera fyrir musteri Drottins, var allt gert úr svo miklum eir að það varð ekki vegið. 17 Önnur súlan var átján álnir á hæð og súluhöfuðið úr eir. Það var þrjár álnir á hæð og var net með granateplum umhverfis súluhöfuðið. Allt þetta var úr eir. Hin súlan var eins og á henni var einnig net.