Biblíulestur – 24. ágúst – Lúk 19.41–48
Og er Jesús kom nær og sá borgina grét hann yfir henni og sagði: „Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum. Því að þeir dagar munu koma yfir þig að óvinir þínir munu gera virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu. Þeir munu leggja þig að velli og börn þín sem í þér eru og ekki láta standa stein yfir steini í þér vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma.“
Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja og mælti við þá: „Ritað er:
Hús mitt á að vera bænahús
en þér hafið gert það að ræningjabæli.“
Daglega var hann að kenna í helgidóminum en æðstu prestarnir og fræðimennirnir, svo og fyrirmenn þjóðarinnar, leituðust við að ráða hann af dögum en fundu eigi hvað gera skyldi því að allt fólkið vildi ákaft hlýða á hann.
Biblíulestur á þriðja sunnudegi í aðventu – Lúk 3.1-18
Jóhannes skírir og kennir 1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og [...]
Biblíulestur 14. desember – Slm 80.9-20
9Þú reifst upp vínvið í Egyptalandi, stökktir burt þjóðum og gróðursettir hann, 10þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið. 11Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré [...]
Biblíulestur 13. desember – 4Mós 12.1-16
Mirjam og Aron gegn Móse 1 Mirjam og Aron ávítuðu Móse vegna konunnar frá Kús sem hann hafði tekið sér fyrir eiginkonu. 2 Þau sögðu: „Hefur Drottinn aðeins talað við [...]
Biblíulestur 12. desember – 4Mós 11.16-35
16 Drottinn sagði við Móse: „Veldu fyrir mig sjötíu menn úr hópi öldunga Ísraels sem þú veist að eru öldungar þjóðarinnar og eftirlitsmenn hennar. Þú skalt leiða þá að samfundatjaldinu [...]
Biblíulestur 11. desember – 4Mós 11.1-15
Þjóðin möglar í Tabera 1 Einhverju sinni tók fólkið að kvarta hástöfum við Drottin yfir mótlæti sínu. Þegar Drottinn heyrði þetta blossaði reiði hans upp og eldur Drottins kviknaði og [...]
Biblíulestur 10. desember – 4Mós 10.11-36
Lagt af stað frá Sínaí 11 Á tuttugasta degi annars mánaðar hóf skýið sig upp frá sáttmálstjaldinu. 12 Þá lögðu Ísraelsmenn af stað frá Sínaíeyðimörkinni í þeirri röð sem ákveðin [...]