Biblíulestur – 27. ágúst – 5Mós 15.1–11
Sjöunda hvert ár skaltu fella niður skuldir. Eftir þessum reglum skaltu fella niður skuldir: Sérhver lánardrottinn skal falla frá kröfum vegna láns sem hann hefur veitt náunga sínum. Hann skal ekki ganga eftir greiðslu hjá náunga sínum og meðbróður því að niðurfelling skulda hefur verið boðuð vegna Drottins. Þú mátt ganga hart að útlendingi en þú skalt gefa bróður þínum það eftir sem þú átt hjá honum.
Raunar á enginn þín á meðal að vera fátækur því að í landinu, sem Drottinn, Guð þinn, fær þér sem erfðaland og þú tekur til eignar, mun Drottinn blessa þig ríkulega ef þú aðeins hlýðir Drottni, Guði þínum, og gætir þess að halda öll ákvæðin sem ég set þér í dag. Því að Drottinn, Guð þinn, mun blessa þig eins og hann hét þér. Þá munt þú lána mörgum þjóðum en sjálfur ekki þurfa að taka lán og þú munt ríkja yfir mörgum þjóðum en engin mun ríkja yfir þér.
Ef einhver bræðra þinna er fátækur í einni af borgum þínum í landinu sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér skaltu ekki loka hendi þinni fyrir fátækum bróður þínum með harðýðgi heldur skalt þú ljúka upp hendi þinni fyrir honum. Þú skalt lána honum það sem hann skortir.
Gæt þess að hleypa ekki þessari ódrengilegu hugsun að: „Nú er skammt til sjöunda ársins þegar skuldir skulu felldar niður,“ og þú lítir þurfandi bróður þinn illu auga og gefir honum ekkert. Þá mun hann ákalla Drottin og ásaka þig og það verður þér til syndar.
Þú skalt gefa honum fúslega en ekki með ólund því að fyrir það mun Drottinn, Guð þinn, blessa öll þín verk og hvað sem þú tekur þér fyrir hendur. Því að aldrei mun fátækra vant verða í landinu og þess vegna geri ég þér þetta að skyldu: Ljúktu upp hendi þinni fyrir meðbræðrum þínum, fátækum og þurfandi í landi þínu.
Biblíulestur 2. janúar – 4Mós 17.16-26
Stafur Arons 16 Drottinn talaði til Móse og sagði: 17 „Ávarpaðu Ísraelsmenn og fáðu hjá þeim tólf stafi, einn staf frá hverri fjölskyldu, einn staf frá hverjum höfðingja ættbálka þeirra. [...]
Biblíulestur á nýársdag – Lk 2.21
21 Þegar átta dagar voru liðnir skyldi umskera hann og var hann látinn heita Jesús eins og engillinn nefndi hann áður en hann var getinn í móðurlífi.
Biblíulestur 31. desember – Lúk 13.6-9
6Og allir munu sjá hjálpræði Guðs. 7 Við mannfjöldann, sem fór út til að láta hann skíra sig, sagði hann: „Þið nöðrukyn, hver kenndi ykkur að flýja komandi reiði? 8 [...]
Biblíulestur 30. desember – 4Mós 16.25-17.15
16. kafli 25 Móse reis þá á fætur og gekk til Datans og Abírams en öldungar Ísraels fylgdu honum. 26 Hann ávarpaði söfnuðinn og sagði: „Farið nú frá tjöldum þessara [...]
Biblíulestur 29.desember – Lúk 2.22-33
Jesús færður Drottni 22 En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, 23 en svo er ritað [...]
Biblíulestur 28. desember – Okv 27.1-14
1Hælstu ekki um af morgundeginum því að þú veist ekki hvað dagurinn ber í skauti sínu. 2Láttu aðra hrósa þér, ekki þinn eigin munn, annarra varir, ekki þínar eigin. 3Steinar [...]