Biblíulestur – 26. ágúst – 5Mós 14.22–29
Á hverju ári skaltu taka tíund af allri uppskerunni sem akurinn gefur af sáðkorni þínu. Síðan skaltu neyta tíundarinnar af korni þínu, víni og olíu og af frumburðum nauta þinna og sauðfjár frammi fyrir Drottni, Guði þínum, á staðnum sem hann velur til þess að láta nafn sitt búa þar svo að þú lærir að óttast Drottin, Guð þinn, alla daga.
Sé staðurinn of langt frá þér sem Drottinn, Guð þinn, hefur valið til að setja nafn sitt á og sé leiðin of löng til þess að þú getir flutt þangað það sem Drottinn, Guð þinn, hefur blessað þig með, þá skaltu koma tíund þinni í peninga. Þú skalt binda um silfrið og taka það með þér til staðarins sem Drottinn, Guð þinn, hefur valið sér. Fyrir silfrið skaltu kaupa hvað sem þig lystir: naut og sauðfé, vín og sterka drykki eða hvað annað sem þig langar í. Þú skalt neyta þess frammi fyrir Drottni, Guði þínum, og gleðjast með fjölskyldu þinni.
Þú skalt ekki setja Levítana hjá, sem búa í borg þinni, því að þeir hafa hvorki fengið land né erfðahluti eins og þú.
Þriðja hvert ár skalt þú taka til alla tíundina af uppskeru þinni það árið og koma henni fyrir innan borgarhliða þinna. Þá geta Levítarnir, sem hvorki hafa hlotið land né erfðahluti eins og þú, aðkomumennirnir, munaðarleysingjar og ekkjur í borgum þínum komið og etið sig mett svo að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.
Biblíulestur 27. desember – 4Mós 16.1-24
Andóf Kóra, Datans og Abírams 1 Kóra Jíseharsson, Kahatssonar Levísonar, ásamt Datan og Abíram, sonum Elíabs Pallúsonar, sem voru niðjar Rúbens, 2 gengu fyrir Móse. Með þeim voru tvö hundruð [...]
Biblíulestur á annan jóladag – Matt 1.18-25
Fæðing Jesú 18 Fæðing Jesú Krists varð á þennan hátt: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman reyndist hún þunguð af heilögum anda. 19 Jósef, [...]
Biblíulestur á jóladag – Jóh 1.1-14
Orðið varð hold 1 Í upphafi var Orðið[ og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. 2 Hann var í upphafi hjá Guði. 3 Allt varð til fyrir hann,[ [...]
Biblíulestur á aðfangadegi – Lúk 2.1-14
Lagður í jötu 1 En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. 2Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá [...]
Biblíulestur á Þorláksmessu – Matt 24.42-47
42 Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. 43 Það skiljið þér að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á [...]
Biblíulestur á fjórða sunnudegi í aðventu – Jóh 3.22-30
Hann á að vaxa 22 Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. 23 Jóhannes var líka að skíra í Aínon [...]