Orðið varð hold

1 Í upphafi var Orðið[ og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. 2 Hann var í upphafi hjá Guði. 3 Allt varð til fyrir hann,[ án hans varð ekki neitt sem til er. 4 Í honum var líf og lífið var ljós mannanna. 5 Ljósið skín í myrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því.
6 Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes. 7 Hann kom til vitnisburðar, að vitna um ljósið og vekja alla til trúar á það. 8 Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið.
9 Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn. 10 Hann var í heiminum og heimurinn var orðinn til fyrir hann en heimurinn þekkti hann ekki. 11 Hann kom til eignar sinnar en hans eigið fólk tók ekki við honum. 12En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. 13 Þau urðu ekki til á náttúrulegan hátt né af vilja manns heldur eru þau af Guði fædd.
14 Og Orðið varð hold,[ hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum.