Biblíulestur – 28. ágúst – 5Mós 15.12–23
Selji landi þinn sig þér, hvort sem er hebreskur karl eða kona, skal hann þjóna þér í sex ár en sjöunda árið skaltu láta hann frjálsan frá þér fara. Þegar þú leysir hann skaltu ekki láta hann fara tómhentan. Þú skalt fá honum svo mikið sem hann getur borið af sauðahjörð þinni og þreskivelli og úr vínpressu þinni og gefa honum af öllu sem Drottinn, Guð þinn, hefur blessað þig með. Minnstu þess að þú varst sjálfur þræll í Egyptalandi og Drottinn, Guð þinn, keypti þig lausan. Þess vegna legg ég þetta boð fyrir þig í dag.
En segi nú þessi þræll við þig: „Ég vil ekki fara frá þér,“ af því að honum þykir vænt um þig og fjölskyldu þína og líður vel hjá þér, þá skaltu taka al og stinga honum í gegnum eyrnasnepil hans og í hurðina. Hann verður þá þræll þinn ævilangt. Á sama hátt skaltu fara með ambátt þína.
Taktu það ekki nærri þér að þurfa að senda hann frá þér frjálsan mann því að hann hefur unnið fyrir þig í sex ár fyrir jafngildi þess sem þú hefðir þurft að greiða kaupamanni. Og Drottinn mun blessa þig í öllu sem þú gerir.
Þú skalt helga Drottni, Guði þínum, alla karlkyns frumburði nautgripa þinna og sauðfjár. Þú skalt ekki hafa frumburði nauta þinna til vinnu og ekki rýja frumburði sauðfjár þíns.
Á hverju ári skaltu eta frumburði búfjár þíns með fjölskyldu þinni, frammi fyrir Drottni, Guði þínum, á staðnum sem Drottinn velur.
En séu einhver lýti á dýri, það halt eða blint eða með annan slæman galla, skaltu ekki færa það Drottni, Guði þínum, að sláturfórn. Þú skalt neyta þess í heimaborg þinni. Bæði hreinn maður og óhreinn mega eta það saman eins og það væri skógargeit eða hjörtur. En þú mátt ekki neyta blóðsins, þú skalt hella því á jörðina eins og vatni.
Biblíulestur 8. janúar – 4Mós 19.1-13
Hreinsunarvatn 1 Drottinn talaði til Móse og Arons og sagði: 2 „Þetta er lagaákvæði sem Drottinn hefur sett: Segðu Ísraelsmönnum að færa þér gallalausa, rauða kú án lýta sem enn [...]
Biblíulestur 7. janúar – 4Mós 18.20-32
Hlutur Levítanna 20 Drottinn sagði við Aron: „Þú skalt ekki hljóta neinn erfðahlut í landi þeirra og enga jarðeign meðal þeirra. Ég er jarðeign þín og erfðahlutur meðal Ísraelsmanna. 21 [...]
Biblíulestur á þrettándanum – Matt 2.13-15
Til Egyptalands 13 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera [...]
Biblíulestur 5. janúar – Lúk 2.41-52
Jesús tólf ára 41 Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. 42 Þegar hann var tólf ára fóru þau upp þangað eins og þau voru vön og tóku [...]
Biblíulestur 4. janúar – Slm 82.1-8
1 Asafssálmur. Guð stendur á guðaþingi, hann heldur dóm meðal guðanna. 2„Hve lengi ætlið þér að dæma ranglega og draga taum óguðlegra? (Sela) 3Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið þjáða [...]
Biblíulestur 3. janúar – 4Mós 17.27-18.19
17. kafli 27 Ísraelsmenn sögðu við Móse: „Við deyjum, við förumst, við förumst allir. 28 Sérhver sem kemur nærri bústað Drottins hlýtur að deyja. Eigum við þá allir að líða [...]