Biblíulestur – 30. september – 2Kor 12.1–10
Ég verð að halda áfram að hrósa mér þótt það komi að litlu gagni. En ég mun nú snúa mér að vitrunum og opinberunum sem Drottinn hefur birt mér. Ég þekki kristinn mann. Fyrir fjórtán árum var hann hrifinn burt allt til þriðja himins. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það. / Og mér er kunnugt um að þessi maður var hrifinn upp í Paradís og heyrði ósegjanleg orð sem engum manni er leyft að mæla. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það. Af slíku vil ég hrósa mér en af sjálfum mér vil ég ekki hrósa mér nema þá af veikleika mínum. Þótt ég vildi hrósa mér væri ég ekki frávita því að ég væri að segja sannleika. En ég veigra mér við því til þess að enginn skuli ætla mig meiri en hann sér mig eða heyrir.
Og til þess að ég skuli ekki ofmetnast af hinum miklu opinberunum er mér gefinn fleinn í holdið, Satans engill, sem slær mig til þess að ég skuli ekki líta of stórt á mig. Þrisvar hef ég beðið Drottin þess að láta hann fara frá mér. Og hann hefur svarað mér: „Náð mín nægir þér því að mátturinn fullkomnast í veikleika.“ Því vil ég helst hrósa mér af veikleika mínum til þess að kraftur Krists megi taka sér bústað í mér. Þess vegna uni ég mér vel í veikleika, í misþyrmingum, í nauðum, í ofsóknum, í þrengingum vegna Krists. Þegar ég er veikur þá er ég máttugur.
Biblíulestur 29. júlí – Jer 38.1-13
Jeremía bjargað úr dýflissu 1 Sefatja Mattansson, Gedalja Pashúrsson, Júkal Selemjason og Pashúr Malkíason heyrðu boðskapinn sem Jeremía hafði flutt öllu fólkinu þegar hann sagði: 2 „Svo segir Drottinn: Sá [...]
Biblíulestur 28. júlí – Jer 37.1-21
Sendimenn Sedekía og Jeremía 1 Sedekía Jósíason varð konungur eftir Konja Jójakímsson. Nebúkadresar konungur í Babýlon gerði hann að konungi í Júda. 2 En hvorki hann sjálfur, þjónar hans né [...]
Biblíulestur 27. júlí – Jer 36.21-32
Jójakím brennir bókina 21 Þá sendi konungur Jahúdí til þess að sækja bókina og hann tók hana með sér úr herbergi Elísama ríkisritara. Því næst las Jahúdí hana í áheyrn [...]
Biblíulestur 26. júlí – Mark 8.1-9
1 Um þessar mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá: 2 [...]
Biblíulestur 25. júlí – Okv 22.17-29
Orð hinna vitru 17Hneig eyra þitt og hlusta á orð hinna vitru, veit fræðslu minni athygli. 18Gott er að þú geymir þau í brjósti þér, að þau verði sífellt á [...]
Biblíulestur 24. júlí – Jer 36.1-20
Frásagnir Barúks Jójakím og boðun Jeremía 1 Á fjórða stjórnarári Jójakíms Jósíasonar Júdakonungs kom þetta orð til Jeremía frá Drottni: 2 Fáðu þér bók og skráðu á hana allt sem [...]