Biblíulestur – 1. október – 2Kor 12.11–21
Ég hef hagað mér eins og heimskingi. Þið hafið neytt mig til þess. Það voruð þið sem áttuð að mæla með mér. Því að í engu stóð ég hinum stórmiklu postulum að baki enda þótt ég sé ekki neitt. Ég gerði postulatákn á meðal ykkar af mikilli þrautseigju, tákn, undur og kraftaverk. Í hverju voruð þið sett lægra en hinir söfnuðirnir nema ef vera skyldi í því að ég sjálfur hef ekki verið ykkur til byrði? Fyrirgefið mér þennan órétt.
Þetta er nú í þriðja sinn að ég er ferðbúinn að koma til ykkar og ætla ég ekki að verða ykkur til byrði. Ég sækist ekki eftir eigum ykkar heldur ykkur sjálfum því að ekki eiga börnin að sjá fyrir foreldrunum heldur foreldrarnir fyrir börnunum. Ég er fús til að verja því sem ég á, já, leggja sjálfan mig í sölurnar fyrir ykkur. Elskið þið mig síður ef ég elska ykkur heitar? En látum svo að ég hafi ekki verið ykkur til byrði en samt verið slægur og veitt ykkur með brögðum. Hef ég notað nokkurn þeirra sem ég hef sent til ykkar til þess að hafa eitthvað af ykkur? Ég bað Títus að fara og sendi bróðurinn með honum. Hefur þá Títus haft eitthvað af ykkur? Komum við ekki fram í einum og sama anda? Fetuðum við ekki í sömu fótsporin?
Fyrir löngu eruð þið farin að halda að ég sé að verja mig gagnvart ykkur. Nei, ég beini orðum mínum til Guðs eins og þeir sem trúa á Krist. Allt er það ykkur til uppbyggingar, mín elskuðu. Þegar ég kem er ég hræddur um að mér muni þykja þið öðruvísi en ég óska og að ykkur muni þykja ég öðruvísi en þið óskið. Ég er hræddur um að þið kunnið að eiga í deilum og að öfund, reiði og eigingirni ríki meðal ykkar og menn móðgi og rægi hverjir aðra og séu hrokafullir og fullir ofstopa. Ég er hræddur um að Guð minn muni auðmýkja mig hjá ykkur þegar ég kem aftur og að ég muni hryggjast yfir mörgum þeirra sem áður hafa syndgað og ekki hafa snúið sér frá saurlífi, frillulífi og ólifnaði sem þeir hafa drýgt.
Biblíulestur 4. ágúst – Kól 1.24-2.5
1. kafli Hann boðum við 24 Nú er ég glaður í þjáningum mínum ykkar vegna og uppfylli með þjáningum líkama míns það sem enn vantar á þjáningar Krists til heilla [...]
Biblíulestur 3. ágúst – Kól 1.1-23
Kveðja 1 Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, og Tímóteus, bróðir vor, heilsa 2 þeim í Kólossu sem eru trúuð og helguð systkin[ í Kristi. Náð sé með yður [...]
Biblíulestur 2. ágúst – Matt 7.15-23
Af ávöxtum þeirra 15 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. 16 Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber [...]
Biblíulestur 1. ágúst – Slm 100.1-5
1 Þakkarfórnarsálmur. Öll veröldin fagni fyrir Drottni. 2Þjónið Drottni með gleði, komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng. 3Játið að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss og hans erum vér, [...]
Biblíulestur 31. júlí – Jer 39.1-18
Jerúsalem fellur 1 Á níunda stjórnarári Sedekía Júdakonungs, í tíunda mánuðinum, hélt Nebúkadresar, konungur í Babýlon, gegn Jerúsalem með allan her sinn og settist um hana. 2 Á ellefta stjórnarári [...]
Biblíulestur 30. júlí – Jer 38.14-28
Síðasta samtal spámannsins og Sedekía 14 Sedekía konungur sendi mann eftir Jeremía spámanni að þriðja innganginum í hús Drottins. Konungur sagði við Jeremía: „Ég ætla að spyrja þig nokkurs. Leyndu [...]