Síðasta samtal spámannsins og Sedekía

14 Sedekía konungur sendi mann eftir Jeremía spámanni að þriðja innganginum í hús Drottins. Konungur sagði við Jeremía: „Ég ætla að spyrja þig nokkurs. Leyndu mig engu.“ 15 Jeremía svaraði Sedekía: „Ef ég svara þér læturðu áreiðanlega taka mig af lífi og ef ég gef þér ráð hlustarðu ekki á mig.“ 16 Því næst vann Sedekía konungur Jeremía eið á laun og sagði: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sem gaf oss lífið, mun ég hvorki láta taka þig af lífi né fá þig þeim mönnum í hendur sem sækjast eftir lífi þínu.“ 17 Þá sagði Jeremía við Sedekía: „Svo segir Drottinn, Guð hersveitanna, Guð Ísraels: Ef þú gengur út til herforingja konungsins í Babýlon heldurðu lífi, þessi borg verður ekki brennd og munt þú og fjölskylda þín lífi halda. 18 En gangir þú ekki út til herforingja konungsins í Babýlon verður þessi borg seld Kaldeum í hendur. Þeir munu eyða hana í eldi og sjálfur muntu ekki ganga þeim úr greipum.“
19 Sedekía konungur svaraði Jeremía: „Ég óttast Júdamennina sem gerst hafa liðhlaupar og farið til Kaldea, að Kaldear selji mig þeim í hendur og þeir leiki mig grátt.“
20 Jeremía sagði: „Þú verður ekki framseldur. Hlýddu á orð Drottins, sem ég flyt þér, svo að þér vegni vel og þú haldir lífi. 21 En viljir þú ekki ganga út til þeirra hefur Drottinn birt mér þetta: 22 Ég sá að allar konurnar, sem voru eftir í húsi Júdakonungs, voru leiddar út til herforingja konungsins í Babýlon. Þær sögðu:
Góðvinir þínir hafa blekkt þig,
þeir hafa orðið þér yfirsterkari.
Þegar fætur þínir sökkva í foraðið
snúa þeir við þér baki.

23 Allar konur þínar og börn verða leidd út til Kaldea. Sjálfur muntu ekki ganga þeim úr greipum heldur verður þú gripinn og seldur konunginum í Babýlon í hendur og þessi borg verður eydd í eldi.“
24 Þá sagði Sedekía við Jeremía: „Enginn má vita neitt um þetta samtal, annars muntu deyja. 25 En ef höfðingjarnir frétta að ég hafi talað við þig koma þeir til þín og segja: Skýrðu okkur frá því sem þú sagðir við konung. Leyndu okkur engu, eða við drepum þig. Hvað sagði konungur við þig? 26 En þú skalt svara þeim: Ég bað konung um að verða ekki sendur aftur í hús Jónatans til þess að deyja þar.“
27 Allir höfðingjarnir komu til Jeremía og spurðu hann. Hann svaraði þeim nákvæmlega eins og konungur hafði fyrir hann lagt. Þeir létu hann þá eiga sig því að enginn hafði heyrt samtalið.
28 Jeremía var nú um kyrrt í forgarði varðliðsins, allt til þess dags er Jerúsalem var tekin.