Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 5. október – Lúk 7.11–17

Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. Þegar hann nálgaðist borgarhliðið þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni. Og er Drottinn sá hana kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: „Grát þú eigi!“ Og hann gekk að og snart líkbörurnar en þeir sem báru námu staðar. Þá sagði hann: „Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!“ Hinn látni settist þá upp og tók að mæla og Jesús gaf hann móður hans.
En ótti greip alla og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: „Spámaður mikill er risinn upp meðal okkar,“ og „Guð hefur vitjað lýðs síns.“
Og þessi fregn um Jesú barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.

Biblíulestur 28. ágúst – Jer 49.1-6

Gegn Ammónítum 1 Um Ammóníta. Svo segir Drottinn: Á Ísrael enga syni, engan sem tekur arf eftir hann? Hvers vegna tók Milkóm ættbálk Gaðs í arf, hví settist þjóð Milkóms [...]

Biblíulestur 27. ágúst – Jer 48.35-47

35 Ég mun hindra, segir Drottinn, að Móab færi brennifórnir á fórnarhæðinni og kveiki guðum sínum fórnareld. 36 Hjarta mitt titrar vegna Móabs eins og flaututónn og hjarta mitt titrar [...]

Biblíulestur 26. ágúst – Jer 48.16-34

16Tortíming Móabs er í nánd, ógæfan dynur brátt yfir hann. 17Sýnið honum samúð, nágrannar hans, og allir sem þekkið nafn hans. Segið: „Hvers vegna brast hinn sterki stafur, hinn dýrlegi [...]

Biblíulestur 25. ágúst – Jer 48.1-15

Gegn Móab: Eyðing Móabs 1 Um Móab. Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Vei, Nebó, hún er lögð í eyði, Kirjataím fallin, virkið er orðið til skammar, lagt í rúst, [...]

Biblíulestur 23. ágúst – Lúk 18.9-14

Farísei og tollheimtumaður 9 Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: 10 „Tveir menn fóru upp í helgidóminn [...]

Fara efst