Biblíulestur – 28. október – 1Þess 3.1–13
Þar kom að ég þoldi ekki lengur við og réð þá af að verða einn eftir í Aþenu en sendi Tímóteus, bróður minn. Hann var samverkamaður Guðs við að boða fagnaðarerindið um Krist og átti að styrkja ykkur og uppörva ykkur í trúnni svo að enginn léti bifast í þessum þrengingum. Þið vitið sjálf að þeirra er að vænta. Þegar ég var hjá ykkur þá sagði ég ykkur fyrir að ég mundi verða að þola þrengingar. Það er líka komið fram eins og þið vitið. Því þoldi ég ekki lengur við og sendi Tímóteus til að fá að vita um trú ykkar, hvort freistarinn kynni að hafa freistað ykkar og erfiði mitt orðið til einskis.
En nú er Tímóteus aftur kominn til mín frá ykkur og hefur borið mér gleðifregn um trú ykkar og kærleika. Hann segir að þið minnist mín ávallt með hlýjum hug og ykkur langi til að sjá mig, eins og mig líka til að sjá ykkur. Sökum þessa hef ég, systkin, hlotið huggun í neyð minni og þrengingu vegna trúar ykkar. Nú lifi ég fyrst þið standið stöðug í trúnni á Drottin. Hvernig get ég nógsamlega þakkað Guði fyrir alla þá gleði er hann lét ykkur veita mér? Ég bið nótt og dag, heitt og af hjarta, að fá að sjá ykkur og bæta úr því sem áfátt er trú ykkar.
Sjálfur Guð og faðir vor og Drottinn vor Jesús greiði veg minn til ykkar. En Drottinn efli ykkur og auðgi að kærleika hvert til annars og til allra eins og ég ber kærleika til ykkar. Þannig styrkir hann hjörtu ykkar svo að þið verðið óaðfinnanleg og heilög í augum Guðs, föður vors, þegar Drottinn vor Jesús kemur ásamt öllum sínum heilögu.
Biblíulestur 18. janúar – Post 24.22-25.12
24. kafli 22 Felix, sem var vel kunnugt um veginn, frestaði nú málinu og mælti: „Þegar Lýsías hersveitarforingi kemur ofan hingað skal ég skera úr máli ykkar.“ 23 Hann bauð [...]
Biblíulestur 17. janúar – Matt 9.27-31
Tveir blindir 27 Þá er Jesús hélt þaðan fóru tveir blindir menn eftir honum og kölluðu: „Miskunna þú okkur, sonur Davíðs.“ 28 Þegar hann kom heim gengu blindu mennirnir til [...]
Biblíulestur 16. janúar – Slm 107.33-43
33 Hann gerir fljótin að eyðimörk og uppsprettur að þurrum lendum, 34 frjósamt land að saltsléttu sakir illsku íbúanna. 35 Hann gerir eyðimörk að vatnstjörnum og þurrlendið að uppsprettum, 36 [...]
Biblíulestur 15. janúar – Post 24.1-21
Sókn og vörn 1 Fimm dögum síðar fór Ananías æðsti prestur ofan þangað og með honum nokkrir öldungar og Tertúllus nokkur málafærslumaður. Þeir báru sakir á Pál fyrir landstjóranum. 2 [...]
Biblíulestur 14. janúar – Post 23.12-35
Gyðingar bindast samtökum 12 Þegar dagur rann bundust Gyðingar samtökum og sóru þess eið að eta hvorki né drekka fyrr en þeir hefðu ráðið Pál af dögum. 13 Voru þeir [...]
Biblíulestur 13. janúar – Post 22.22-23.11
22. kafli Í höndum hermanna 22 Allt að þessu orði hlýddu menn á hann en nú hófu þeir upp raust sína og hrópuðu: „Burt með slíkan mann af jörðinni! Eigi [...]