Biblíulestur – 19. nóvember – 5Mós 30.15–20
Hér með legg ég fyrir þig líf og heill, dauða og óheill.
Ef þú hlýðir boðum Drottins, sem ég set þér í dag, með því að elska Drottin, Guð þinn, ganga á vegum hans og halda boð hans, ákvæði og lög, munt þú lifa og þér mun fjölga og Drottinn, Guð þinn, mun blessa þig í landinu sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar.
En ef hjarta þitt gerist fráhverft og þú hlýðir ekki og lætur tælast til að sýna öðrum guðum lotningu og þjóna þeim, lýsi ég því hér með yfir að ykkur verður gereytt. Þið munuð þá ekki lifa lengi í landinu sem þú heldur inn í yfir Jórdan að taka til eignar.
Ég kveð bæði himin og jörð til vitnis gegn ykkur í dag: Ég hef lagt fyrir þig líf og dauða, blessun og bölvun. Veldu þá lífið svo að þú og niðjar þínir megið lifa með því að elska Drottin, Guð þinn, hlýða boði hans og halda þér fast við hann því að þá muntu lifa og verða langlífur í landinu sem Drottinn hét að gefa feðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakobi.
Biblíulestur 4. júní – 1Kor 15.12–28
Afleiðing upprisu Krists 12 Ef við nú prédikum að Kristur sé upprisinn frá dauðum, hvernig geta þá nokkur ykkar sagt að dauðir rísi ekki upp? 13 Ef ekki er til [...]
Biblíulestur 3. júní – Jes 53.7–12
7Hann var hart leikinn og þjáður en lauk eigi upp munni sínum fremur en lamb sem leitt er til slátrunar eða sauður sem þegir fyrir þeim er rýja hann, hann [...]
Biblíulestur 2. júní – Jes 62.1–7
Hjálpræðið kemur 1Sökum Síonar get ég ekki þagað og vegna Jerúsalem ekki verið hljóður [ fyrr en réttlæti hennar brýst fram eins og ljómi og hjálpræði hennar logar sem kyndill. [...]
Biblíulestur 1. júní – 1Sam 1.9–20
Hanna og Elí 9 Að lokinni máltíð í Síló stóð Hanna á fætur og gekk fram fyrir auglit Drottins. Elí prestur sat á stól sínum við dyrastafinn á musteri Drottins. [...]
Biblíulestur 31. maí – 1Sam 1.1–8
1 Í Ramataím í Efraímsfjöllum bjó maður af Súfætt. Hann hét Elkana og var sonur Jeróhams Elíhúsonar, Tóhúsonar, Súfssonar frá Efraím. 2 Hann átti tvær eiginkonur, hét önnur Hanna en [...]
Biblíulestur Þrenningarhátíð – Matt 11.25-27
25 Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. 26 [...]