Biblíulestur – 18. nóvember – 5Mós 30.1–14
Þegar allt þetta, blessunin og bölvunin sem ég hef lagt fyrir þig í dag, er yfir þig komið og þú minnist þeirra orða á meðal allra þeirra þjóða sem Drottinn, Guð þinn, hrekur þig til, munt þú og niðjar þínir snúa ykkur aftur til Drottins, Guðs þíns. Þið munuð hlýða boði hans af öllu hjarta og allri sálu, öllu sem ég býð þér í dag, þá mun Drottinn, Guð þinn, snúa við högum þínum. Hann mun sýna þér miskunn og safna þér saman frá öllum þeim þjóðum sem Drottinn, Guð þinn, hafði dreift þér á meðal. Jafnvel þótt nokkrir ykkar hafi hrakist allt til endimarka himins mun Drottinn, Guð þinn, safna ykkur saman og sækja þangað. Og Drottinn, Guð þinn, mun leiða þig aftur inn í landið sem forfeður þínir tóku til eignar. Þú munt taka það til eignar og hann mun láta þér farnast betur og gera þig fjölmennari en forfeður þína.
Drottinn, Guð þinn, mun umskera hjarta þitt og hjarta niðja þinna svo að þú elskir Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og allri sálu þinni svo að þú lifir. Þá mun Drottinn, Guð þinn, leggja allar þessar bölvanir á fjandmenn þína og andstæðinga sem hafa ofsótt þig. En sjálfur munt þú snúa við, hlýða boði Drottins og framfylgja öllum boðum hans sem ég set þér í dag. Og Drottinn, Guð þinn, mun veita þér ríkulega í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og í ávexti kviðar þíns, í ávexti búfjár þíns og í ávexti lands þíns því að Drottinn mun aftur gleðjast yfir þér, þér til heilla, eins og hann gladdist yfir forfeðrum þínum ef þú hlýðir boði Drottins, Guðs þíns, að halda fyrirmæli hans og lög sem skráð eru á þessa lögbók og ef þú snýrð aftur til Drottins, Guðs þíns, af öllu hjarta þínu og allri sálu þinni. Þetta boð, sem ég legg fyrir þig í dag, er ekki óskiljanlegt eða fjarlægt þér. Það er ekki uppi í himninum svo að þú þurfir að spyrja: „Hver vill stíga upp í himininn og sækja það og kunngjöra okkur það svo að við getum framfylgt því?“ Það er ekki heldur handan hafsins svo að þú þurfir að spyrja: „Hver vill fara yfir hafið fyrir okkur og sækja það og kunngjöra okkur það svo að við getum framfylgt því?“
Nei, orðið er mjög nærri þér, í munni þínum og hjarta svo að þú getur breytt eftir því.
Biblíulestur 29. maí – Okv 27.1-14
1Hælstu ekki um af morgundeginum því að þú veist ekki hvað dagurinn ber í skauti sínu. 2Láttu aðra hrósa þér, ekki þinn eigin munn, annarra varir, ekki þínar eigin. 3Steinar [...]
Biblíulestur 28. maí – Dóm 13.19–25
19 Manóa tók geithafurinn og matfórnina og færði hana Drottni á kletti einum. Þá urðu undur mikil að þeim Manóa og konu hans ásjáandi. 20 Þegar logann lagði upp af [...]
Biblíulestur 27. maí – Dóm 13.8–18
8 Þá bað Manóa Drottin og sagði: „Æ, herra, láttu guðsmanninn, sem þú sendir, koma til okkar aftur svo að hann geti kennt okkur hvernig við eigum að fara með [...]
Biblíulestur 26. maí – Dóm 13.1–7
Fæðing Samsonar 1 Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Filisteum í fjörutíu ár. 2 Maður er nefndur Manóa. [...]
Biblíulestur 25. maí – Jóh 6.51–58
51 Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum [...]
Biblíulestur Annar í hvítasunnu – Jóh 4.19-26
19 Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. 20 Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá [...]