Biblíulestur – 10. desember – Ef 1.1–14
Páll, að vilja Guðs postuli Krists Jesú, heilsar hinum heilögu í Efesus sem trúa á Krist Jesú.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem í Kristi hefur blessað oss með allri andlegri blessun himinsins. Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í Kristi að hann hefði oss fyrir augum sér heilög og lýtalaus í kærleika.
Fyrir fram ákvað hann að gera oss að börnum sínum í Jesú Kristi.
Sá var náðarvilji hans.
Hann vildi að vér yrðum til vegsemdar dýrð hans og náð
sem hann hefur gefið oss í sínum elskaða syni.
Í honum, fyrir hans blóð, eigum vér endurlausnina
og fyrirgefningu afbrota vorra.
Svo auðug er náð hans sem hann gaf oss ríkulega
með hvers konar vísdómi og skilningi.
Og hann hefur birt oss leyndardóm vilja síns,
þann ásetning um Krist
sem hann í náð sinni ætlaði sér að framkvæma í fyllingu tímanna:
Að safna öllu sem til er á himni og jörðu undir eitt höfuð í Kristi.
Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina
eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans
er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns
til þess að vér, sem áður höfum sett von vora til Krists,
skyldum vera dýrð hans til vegsemdar.
Í honum eruð og þér eftir að hafa heyrt orð sannleikans,
fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar
og tekið trú á hann
og verið merkt innsigli heilags anda sem yður var fyrirheitið.
Hann er pantur arfleifðar vorrar
að vér verðum endurleyst Guði til eignar,
dýrð hans til vegsemdar.
Biblíulestur 13. október – Jer 26.1–11
Musterisræðan 1 Í upphafi stjórnar Jójakíms Jósíasonar Júdakonungs kom þetta orð frá Drottni: 2 Svo segir Drottinn: Gakktu inn í forgarð húss Drottins og ávarpaðu alla þá sem koma frá [...]
Biblíulestur 12. október – Jer 7.1–15
Musterisræðan 1 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: 2 Taktu þér stöðu við hliðið að húsi Drottins, flyttu þar þessa ræðu og segðu: Heyrið orð Drottins, allir Júdamenn, sem [...]
Biblíulestur 11. október – Jes 56.3–8
3Útlendingur, sem er genginn Drottni á hönd, skal ekki segja: „Drottinn skildi mig frá þjóð sinni,“ og geldingur skal ekki segja: „Ég er visið tré.“ 4Því að svo segir Drottinn: [...]
Biblíulestur 10. október – Jóh 1.43–51
43 Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann: „Fylg þú mér!“ 44 Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur. [...]
Biblíulestur 9. október – Slm 123 og Slm 124
Sálmur 123 1 Helgigönguljóð. Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum. 2Eins og þjónar mæna á hönd húsbænda sinna og eins og þerna mænir á hönd [...]
Biblíulestur 8. október – 1Kon 9.4–9
4 Ef þú gengur fyrir auglit mitt, eins og Davíð, faðir þinn, gerði af heilum huga og í einlægni, og ef þú gerir allt sem ég hef boðið þér, heldur [...]