Biblíulestur – 11. desember – Ef 1.15–2.10
Eftir að hafa heyrt um trú ykkar á Drottin Jesú og um kærleika ykkar til allra heilagra hef ég þess vegna ekki heldur látið af að þakka fyrir ykkur er ég minnist ykkar í bænum mínum. Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa ykkur anda speki og opinberunar svo að þið fáið þekkt hann. Ég bið hann að upplýsa sjón hjartans svo að þið sjáið hver sú von er sem hann hefur kallað okkur til, hve ríkulega og dýrlega arfleifð hann ætlar okkur meðal hinna heilögu og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum, ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni sem nefnt er, ekki aðeins í þessari veröld heldur og í hinni komandi. Allt hefur hann lagt undir fætur honum og gefið hann kirkjunni sem höfuðið yfir öllu. En kirkjan er líkami hans og fyllist af honum sem sjálfur fyllir allt í öllu.
Þið voruð dauð vegna afbrota ykkar og synda sem þið lifðuð í áður samkvæmt aldarhætti þessa heims að vilja valdhafans í loftinu, anda þess, sem nú verkar í þeim, sem ekki trúa. Eins lifðum við öll fyrrum, lutum jarðbundnum girndum, gerðum það sem okkur lysti og refsidómur Guðs vofði yfir okkur eins og öðrum mönnum.
En Guð er auðugur að miskunn. Svo mikil var elska hans til okkar að þótt við værum dauð vegna misgjörða okkar endurlífgaði hann okkur með Kristi – af náð eruð þið hólpin orðin – og reisti okkur upp með Kristi Jesú og bjó okkur stað hjá honum í himinhæðum. Þannig vildi hann sýna á komandi öldum ómælanlega auðlegð náðar sinnar og gæsku við okkur í Kristi Jesú, því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því. Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi Jesú til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau.
Biblíulestur 19. október – Dan 6.19–29
19 Gekk konungur síðan heim í höll sína og var þar um nóttina og fastaði. Hann lét ekki færa frillur inn til sín og var andvaka um nóttina. 20 Konungur [...]
Biblíulestur 18. október – Dan 6.7–18
7 Þessir yfirhöfðingjar og héraðshöfðingjar skunduðu nú á konungs fund og sögðu: „Daríus konungur, megir þú lifa að eilífu. 8 Allir yfirhöfðingjar ríkisins, landstjórar, héraðshöfðingjar, ráðgjafar og landshöfðingjar hafa komið [...]
Biblíulestur 17. október – Matt 21.33–44
Vondir vínyrkjar 33 Enn sagði Jesús: „Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu [...]
Biblíulestur 16. október – Slm 125
1 Helgigönguljóð. Þeir sem treysta Drottni eru sem Síonarfjall, það bifast eigi, stendur að eilífu. 2Eins og fjöllin umlykja Jerúsalem umlykur Drottinn lýð sinn héðan í frá og að eilífu. [...]
Biblíulestur 15. október – Esr 9.10–15
10 En Guð, hvað getum vér nú sagt eftir allt þetta? Vér höfum horfið frá boðum þínum 11 sem þú lést spámennina, þjóna þína, leggja fyrir oss og sagðir: Landið, [...]
Biblíulestur 14. október – Esr 9.1–9
Bann gegn mægðum við útlendinga 1 Að þessu loknu komu leiðtogarnir til mín og sögðu: „Ísraelslýður, prestarnir og Levítarnir hafa ekki greint sig frá öðrum þjóðum í landinu þrátt fyrir [...]