Biblíulestur 25. janúar – Mrk 9.2–9
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra og klæði hans urðu fannhvít og skínandi og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gert. Og Elía og Móse birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: „Meistari, gott er að við erum hér. Gerum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“ Hann vissi ekki hvað hann átti að segja enda urðu þeir mjög skelfdir.
Þá kom ský og skyggði yfir þá og rödd kom úr skýinu: „Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!“ Og jafnskjótt litu lærisveinarnir í kringum sig og sáu engan framar hjá sér nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bannaði Jesús þeim að segja nokkrum frá því er þeir höfðu séð fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum.
Biblíulestur 31. júlí – Mrk 8.1–9
Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son. Svo er ritað hjá Jesaja spámanni: Ég sendi sendiboða minn á undan þér, hann á að greiða þér veg. Rödd hrópanda í eyðimörk: [...]
Biblíulestur 30. júlí – Slm 149
Hallelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúfastra. Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, börn Síonar fagni konungi sínum, lofi nafn hans með dansi, flytji honum lofgjörð með [...]
Biblíulestur 29. júlí – Matt 21.1–17
Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið finna [...]
Biblíulestur 28. júlí – Lúk 13.18–35
Jesús sagði nú: „Hverju er Guðs ríki líkt? Við hvað á ég að líkja því? Líkt er það mustarðskorni sem maður tók og sáði í jurtagarð sinn. Það óx og [...]
Biblíulestur 27. júlí – Lúk 13.1–17
Í sama mund komu einhverjir til Jesú og sögðu honum frá Galíleumönnunum sem Pílatus lét drepa er þeir færðu fórnir sínar svo að blóð þeirra blandaðist fórnarblóðinu. Jesús mælti við [...]
Biblíulestur 26. júlí – Lúk 12.49–59
Ég er kominn að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég að hann væri þegar kveiktur! Skírn á ég að skírast. Hversu þungt er mér uns hún er fullnuð. Ætlið [...]