Biblíulestur 26. janúar – Opb 3.1–13
Engli safnaðarins í Sardes skaltu rita:
Þetta segir sá sem hefur þá sjö anda Guðs, stjörnurnar sjö. Ég þekki verkin þín. Þú lifir að nafninu til en ert samt dauður. Vakna þú og styrk það sem eftir er og að dauða komið. Því margt hef ég fundið í fari þínu sem ekki stenst fyrir Guði mínum. Minnst þú þess sem þú hefur numið og heyrt og varðveit það og bæt ráð þitt. Ef þú vakir ekki mun ég koma eins og þjófur og þú munt alls ekki vita á hverri stundu ég kem yfir þig. En þú átt fáein nöfn í Sardes sem ekki hafa saurgað klæði sín og þau munu ganga með mér í hvítum klæðum því að þau eru makleg. Sá er sigrar skal þá skrýðast hvítum klæðum og eigi mun ég afmá nafn hans úr bók lífsins. Ég mun kannast við nafn hans frammi fyrir föður mínum og englum hans.
Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.
Engli safnaðarins í Fíladelfíu skaltu rita:
Þetta segir sá heilagi, sá sanni sem hefur lykil Davíðs, hann sem lýkur upp svo að enginn læsir og læsir svo að enginn lýkur upp. Ég þekki verkin þín. Ég hef látið dyr standa opnar fyrir þér sem enginn getur lokað. Þú hefur lítinn mátt en hefur þó varðveitt orð mitt og ekki afneitað mér. Ég skal láta lygarana af samkundu Satans, sem segjast vera Gyðingar en eru það ekki, koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita að ég elska þig. Af því að þú hefur varðveitt orð mitt um þolgæði mun ég varðveita þig á þeirri reynslustund sem á að koma yfir alla heimsbyggðina til að reyna þau sem á jörðinni búa. Ég kem skjótt. Haltu fast því sem þú hefur til þess að enginn taki kórónu þína. Þann er sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns og hann skal aldrei framar fara þaðan. Á hann mun ég rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt hið nýja.
Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.
Biblíulestur 6. ágúst – Slm 150
Hallelúja. Lofið Guð í helgidómi hans, lofið hann í voldugri festingu hans. Lofið hann fyrir máttarverk hans, lofið hann vegna mikillar hátignar hans. Lofið hann með lúðurhljómi, lofið hann með [...]
Biblíulestur 5. ágúst – Matt 23.1–22
Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna: „Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir breytni þeirra [...]
Biblíulestur 4. ágúst – Matt 22.23–46
Sama dag komu saddúkear til Jesú, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við hann: „Meistari, Móse segir: Deyi maður barnlaus þá skal bróðir hans ganga að [...]
Biblíulestur 3. ágúst – Matt 22.1–22
Þá tók Jesús enn að segja þeim dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og konung einn sem gerði brúðkaup sonar síns. Hann sendi þjóna sína að kalla boðsgestina til brúðkaupsins en [...]
Biblíulestur 2. ágúst – Matt 21.33–46
Enn sagði Jesús: „Heyrið aðra dæmisögu: Landeigandi nokkur plantaði víngarð. Hann hlóð garð um hann, gróf fyrir vínþröng og reisti turn, seldi hann síðan vínyrkjum á leigu og fór úr [...]
Biblíulestur 1. ágúst – Matt 21.18–32
Árla morguns hélt Jesús aftur til borgarinnar og kenndi hungurs. Hann sá fíkjutré eitt við veginn og gekk að því en fann þar ekkert nema blöðin tóm. Hann segir við [...]