Biblíulestur 24. janúar – Slm 114.1–8
Þegar Ísrael fór út af Egyptalandi,
Jakobs ætt frá þjóð sem mælti á framandi tungu,
varð Júda helgidómur hans,
Ísrael konungsríki hans.
Hafið sá það og flýði,
Jórdan hörfaði undan,
fjöllin stukku sem hrútar,
hæðirnar sem lömb.
Hvað veldur því, haf, að þú flýrð,
Jórdan, að þú hörfar undan,
fjöll, að þér stökkvið sem hrútar,
og þér, hæðir, sem lömb?
Titra þú jörð fyrir augliti Drottins,
fyrir augliti Jakobs Guðs
sem gerði klettinn að vatnsflaumi
og tinnusteininn að vatnslind.
Biblíulestur 25. júlí – Lúk 12.32–48
Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið. Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur er slitna ekki, fjársjóð á himnum [...]
Biblíulestur 24. júlí – Matt 28.18–20
Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í [...]
Biblíulestur 23. júlí – Okv 11.1–11
Svikin vog er Drottni andstyggð en rétt vog er honum geðfelld. Komi hroki kemur og smán en hjá hinum hógværu er viska. Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá en undirferli lygarans tortímir [...]
Biblíulestur 22. júlí – Lúk 12.13–31
Einn úr mannfjöldanum sagði við Jesú: „Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum.“ Hann svaraði honum: „Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?“ Og [...]
Biblíulestur 21. júlí – Lúk 12.1–12
Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig farísea sem er hræsnin. [...]
Biblíulestur 20. júlí – Lúk 11.33–54
Enn sagði Jesús: „Enginn kveikir ljós og setur það í felur né undir mæliker heldur á ljósastiku svo að þeir sem inn koma sjái ljósið. Auga þitt er lampi líkamans. [...]