Biblíulestur 5. mars – Opb 20.4–15
Og ég sá hásæti og menn settust í þau og þeim sem þar sátu var gefið vald til að dæma. Ég sá sálir þeirra sem höfðu verið hálshöggnir af því að þeir höfðu vitnað um Jesú og flutt orð Guðs. Það voru þeir sem höfðu hvorki tilbeðið dýrið né líkneski þess og ekki fengið merki á enni sér og hönd. Og þeir lifnuðu og ríktu með Kristi um þúsund ár. Aðrir dauðir lifnuðu ekki fyrr en þúsund árin voru liðin. Þetta er fyrri upprisan. Sælir og heilagir eru þeir sem eiga hlut í fyrri upprisunni. Yfir þeim hefur hinn annar dauði ekki vald heldur munu þeir vera prestar Guðs og Krists og ríkja með honum um þúsund ár.
Þegar þúsund árin eru liðin verður Satan leystur úr fangelsi sínu. Og hann mun fara og leiða þjóðirnar Góg og Magóg, á fjórum skautum jarðarinnar, afvega og safna þeim saman til stríðs og fjöldi þeirra er sem sandur sjávarins. Þær stigu upp á víðan völl jarðar og umkringdu herbúðir heilagra og borgina elskuðu. En eldur féll af himni ofan og eyddi þeim. Og djöflinum, sem leiðir þær afvega, var kastað í díkið elds og brennisteins, þar sem bæði dýrið og falsspámaðurinn eru. Þau verða kvalin dag og nótt um aldir alda.
Og ég sá mikið hvítt hásæti og þann sem í því sat. Frá augliti hans flúðu himinn og jörð en fundu engan stað. Og ég sá þá dauðu, stóra og smáa, standa frammi fyrir hásætinu og bókunum var lokið upp. Þá var annarri bókinni lokið upp, það var lífsins bók. Og hinir dauðu voru dæmdir eftir verkum sínum eins og ritað var í bókunum. Og hafið skilaði hinum dauðu sem í því voru og dauðinn og hel skiluðu þeim dauðu sem í þeim voru og sérhver hlaut dóm eftir verkum sínum. Og dauðanum og helju var kastað í eldsdíkið. Eldsdíki er hinn annar dauði. Og ef einhver fannst ekki skráður í lífsins bók var honum varpað í eldsdíkið.
Biblíulestur 19. mars – Jóh 6.47–51
Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir hefur eilíft líf. Ég er brauð lífsins. Feður ykkar átu manna í eyðimörkinni en þeir dóu. Þetta er brauðið sem niður stígur [...]
Biblíulestur 18. mars – 2Mós 17.1–7
Allur söfnuður Ísraelsmanna lagði nú af stað frá Síneyðimörkinni og hélt áfram í áföngum eftir fyrirmælum Drottins. Þeir slógu upp búðum í Refídím. Af því að ekkert drykkjarvatn var þar [...]
Biblíulestur 18.3.2023 – Slm 45.7–18
Hásæti þitt, Guð, stendur um aldir alda, veldissproti ríkis þíns er réttlætissproti. Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, þess vegna hefur Guð, þinn Guð, smurt þig fagnaðarolíu fremur en félaga [...]
Biblíulestur 17. mars – Jóh 18.28–19.5
Menn æðsta prestsins fóru nú með Jesú frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Þeir fóru ekki sjálfir inn í höllina svo að þeir saurguðust ekki heldur mættu [...]
Biblíulestur 17. mars – 1Mós 3.1–13
Höggormurinn var slóttugri en öll dýr merkurinnar sem Drottinn Guð hafði gert. Hann sagði við konuna: „Er það satt að Guð hafi sagt: Þið megið ekki eta af neinu tré [...]
Biblíulestur 16. mars – Slm 71.17–24
Guð, þú hefur kennt mér frá æsku og allt til þessa kunngjöri ég dásemdarverk þín. Yfirgef mig eigi, Guð, þó að ég verði gamall og grár fyrir hærum, að ég [...]