Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 6. mars – Opb 21.1–8

Og ég sá nýjan himin og nýja jörð því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið var ekki framar til. Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði er skartar fyrir manni sínum. Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu er sagði: „Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“
Sá sem í hásætinu sat sagði: „Sjá, ég geri alla hluti nýja,“ og hann segir: „Rita þú, því að þetta eru orðin trúu og sönnu.“ Og hann sagði við mig: „Það er fram komið. Ég er Alfa og Ómega, upphafið og endirinn. Ég mun gefa þeim ókeypis, sem þyrstur er, af lind lífsins vatns. Sá er sigrar mun erfa þetta og ég mun vera hans Guð og hann mun vera mitt barn. En staður er búinn í díkinu sem logar af eldi og brennisteini hugdeigum og vantrúuðum, viðurstyggilegum og manndrápurum, frillulífismönnum og töframönnum, skurðgoðadýrkendum og öllum lygurum. Það er hinn annar dauði.“

Biblíulestur 21. mars – Job 1.6–22

Dag nokkurn bar svo til að synir Guðs komu og gengu fyrir Drottin og var Satan á meðal þeirra. Drottinn spurði Satan: „Hvaðan kemur þú?“ Satan svaraði Drottni og sagði: [...]

Biblíulestur 20. mars – 1Kon 8.14–30

Þá sneri konungur sér við og blessaði allan söfnuð Ísraels en allur söfnuður Ísraels stóð. Hann sagði: „Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels. Hann hefur efnt með hendi sinni það sem [...]

Biblíulestur 20. mars – 1Mós 3.14–24

Þá sagði Drottinn Guð við höggorminn: Af því að þú gerðir þetta skaltu vera bölvaður meðal alls fénaðarins og meðal allra dýra merkurinnar. Á kviði þínum skaltu skríða og mold [...]

Biblíulestur 19. mars – 1Kon 8.1–13

Þá safnaði Salómon til sín í Jerúsalem öllum öldungum Ísraels, öllum höfðingjum ættbálka og ætta Ísraels, til þess að flytja sáttmálsörk Drottins frá borg Davíðs, það er frá Síon. Allir [...]

Fara efst