Dag nokkurn bar svo til að synir Guðs komu og gengu fyrir Drottin og var Satan á meðal þeirra. Drottinn spurði Satan: „Hvaðan kemur þú?“ Satan svaraði Drottni og sagði: „Ég hef verið á ferðalagi hingað og þangað um jörðina.“ Þá spurði Drottinn Satan: „Veittir þú athygli þjóni mínum, Job? Enginn maður á jörðinni er jafnráðvandur og réttlátur og hann. Hann óttast Guð og forðast illt.“ Satan svaraði Drottni og sagði: „Er Job guðhræddur að ástæðulausu? Hefur þú ekki verndað hann, hús hans og eignir á alla lund? Þú hefur blessað störf hans og fénaður hans hefur dreift sér um landið. En réttu út hönd þína og snertu allt sem hann á, þá mun hann vissulega formæla þér upp í opið geðið.“ Drottinn sagði við Satan: „Allar eigur hans eru á þínu valdi en gegn honum sjálfum máttu ekki rétta hönd þína.“
Síðan fór Satan frá augliti Drottins.
Nú bar svo til einn daginn þegar synir hans og dætur átu og drukku vín heima hjá elsta bróður sínum að sendiboði kom til Jobs og sagði: „Nautin voru að draga plóginn og asnarnir á beit í grenndinni þegar Sabear gerðu árás og tóku þau með sér en felldu piltana með sverðseggjum. Ég komst einn undan og get flutt þér tíðindin.“
Áður en hann hafði lokið máli sínu kom annar og sagði: „Eldur Guðs féll af himni, kveikti í sauðunum og piltunum og gleypti þá. Ég komst einn undan og get flutt þér tíðindin.“
Áður en hann hafði lokið máli sínu kom enn annar og sagði: „Kaldear fylktu þremur flokkum, réðust á úlfaldana og tóku þá með sér en felldu piltana með sverðseggjum. Ég komst einn undan og get flutt þér tíðindin.“
Áður en hann hafði lokið máli sínu kom enn einn sendiboði og sagði: „Synir þínir og dætur átu og drukku vín heima hjá elsta bróðurnum þegar mikill stormur úr eyðimörkinni skall yfir og braut niður öll fjögur horn hússins. Það hrundi yfir ungmennin og þau létu lífið.“
Þá reis Job á fætur, reif klæði sín og skar hár sitt. Því næst lét hann fallast á jörðina og baðst fyrir með þessum orðum:
Nakinn kom ég af móðurskauti
og nakinn hverf ég þangað aftur,
Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri nafn Drottins.

Þrátt fyrir allt þetta syndgaði Job ekki og álasaði Guði ekki.