Biblíulestur 4. mars – Opb 19.17–20.3
Og ég sá einn engil standa inni í sólinni. Hann hrópaði hárri röddu til allra fuglanna sem flugu um himinhvolfið: „Komið, safnist saman til hinnar miklu máltíðar Guðs til þess að eta hold konunga, herforingja og kappa og til að eta hold hesta og þeirra sem á þeim sitja og hold allra, bæði frjálsra og ófrjálsra, smárra og stórra.“
Og ég sá dýrið og konunga jarðarinnar og hersveitir þeirra safnaðar saman til að heyja stríð við þann sem á hestinum sat og við herlið hans. Og dýrið var handtekið og ásamt því falsspámaðurinn sem hafði látið dýrið gera táknin. Með þeim hafði hann leitt þá afvega sem höfðu fengið merki dýrsins og tilbeðið líkneski þess. Þeim báðum var kastað lifandi í eldsdíkið sem logar af brennisteini. Og hinir voru drepnir með sverðinu sem gekk út af munni þess sem á hestinum sat. Allir fuglarnir söddust af hræjum þeirra.
Og ég sá engil stíga niður af himni. Hann hélt á lykli undirdjúpsins og stórum fjötri í hendi sér. Og hann tók drekann, þann gamla höggorm, sem er djöfull og Satan, og batt hann um þúsund ár. Hann kastaði honum í undirdjúpið, læsti því og setti innsigli yfir svo að hann leiddi ekki framar þjóðirnar afvega uns þúsund ár væru liðin. Eftir það á hann að vera leystur um stuttan tíma.
Biblíulestur 16. mars – Jak 5.12–20
En umfram allt, bræður mínir og systur, sverjið ekki, hvorki við himininn né við jörðina né nokkurn annan eið. En já ykkar sé já, nei ykkar sé nei, svo að [...]
Biblíulestur 15. mars – Ef 1.3–14
Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem í Kristi hefur blessað oss með allri andlegri blessun himinsins. Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í [...]
Biblíulestur 15. mars – Post 9.36–43
Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas. Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða. En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún [...]
Biblíulestur 14. mars – Gal 3.23–4.7
Áður en þessi leið var fær vorum við innilokuð í gæslu lögmálsins þangað til trúin, sem í vændum var, opinberaðist. Þannig hefur lögmálið orðið tyftari okkar þangað til Kristur kom [...]
Biblíulestur 14. mars – Post 8.26–39
En engill Drottins mælti til Filippusar: „Statt upp og gakk suður á veginn sem liggur ofan frá Jerúsalem til Gasa.“ Þar er óbyggð. Hann hlýddi og fór. Þá bar að [...]
Biblíulestur 13. mars – Róm 8.12–23
Þannig erum við, systkin, í skuld, ekki við eigin hyggju að við skyldum lúta henni því að ef þið gerið það munuð þið deyja. En ef þið látið anda Guðs [...]