Biblíulestur 3. mars – Opb 19.6–16
Og ég heyrði raddir sem frá miklum mannfjölda og sem nið margra vatna og sem gný frá sterkum þrumum. Þær sögðu: „Hallelúja, Drottinn Guð vor, hinn alvaldi, er konungur orðinn. Gleðjumst og fögnum og vegsömum hann því að komið er að brúðkaupi lambsins og brúður hans hefur búið sig. Henni var fengið skínandi og hreint lín til að skrýðast í. Línklæðið er dygðir heilagra.“
Engillinn segir við mig: „Rita þú: Sælir eru þeir sem boðið er í brúðkaupsveislu lambsins.“ Og hann segir við mig: „Þetta eru hin sönnu orð Guðs.“ Og ég féll fram fyrir fætur honum til að tilbiðja hann og hann segir við mig: „Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og systkina þinna sem hafa vitnisburð Jesú. Tilbið þú Guð. Vitnisburður Jesú er andi spádómsgáfunnar.“
Þá sá ég himininn opinn. Og sjá: Hvítur hestur. Sá sem á honum sat hét Trúr og Sannur, hann dæmir og berst með réttlæti. Augu hans voru sem eldslogi og á höfði hans voru mörg ennisdjásn. Og hann ber nafn ritað sem enginn þekkir nema hann sjálfur. Hann var skrýddur skikkju, blóði drifinni, og nafn hans er Orðið Guðs. Og hersveitirnar, sem á himni eru, fylgdu honum á hvítum hestum, klæddar hvítu og hreinu líni. Og af munni hans gekk út biturt sverð til að slá þjóðirnar með og hann mun stjórna þeim með járnsprota og troða vínþröng heiftarreiði Guðs hins alvalda. Og hann hefur á skikkju sinni og lend nafn ritað: „Konungur konunga og Drottinn drottna.“
Biblíulestur 13. mars – Mrk 6.1–13
Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína og lærisveinar hans fylgdu honum. Þegar hvíldardagur var kominn tók hann að kenna í samkundunni. Fjöldinn sem á hlýddi undraðist stórum. Menn [...]
Biblíulestur 12. mars – Jóh 8.31–41
Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn [...]
Biblíulestur 12. mars – Jóh 8.42–51
Jesús svaraði: „Ef Guð væri faðir yðar munduð þér elska mig því að frá Guði er ég út genginn og kominn. Ekki hef ég sent mig sjálfur. Það er hann [...]
Biblíulestur 11. mars – Lúk 22.14–30
Og er stundin var komin gekk Jesús til borðs og postularnir með honum. Og hann sagði við þá: „Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður áður en [...]
Biblíulestur 11.3.2023 – Slm 45.1–6
Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, konungi flyt ég kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritara. Fegurri ert þú öðrum mönnum, yndi streymir um varir þínar, fyrir því hefur [...]
Biblíulestur 10. mars – Jóh 6.52–58
Nú deildu Gyðingar hver við annan og sögðu: „Hvernig getur þessi maður gefið okkur líkama sinn að eta?“ Þá sagði Jesús við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér [...]