Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum,
konungi flyt ég kvæði mitt,
tunga mín er sem penni hraðritara.
Fegurri ert þú öðrum mönnum,
yndi streymir um varir þínar,
fyrir því hefur Guð blessað þig að eilífu.
Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja,
ljóma þínum og vegsemd.
Sæktu sigursæll fram
í þágu sannleika, mildi og réttlætis.
Hægri hönd þín kenni þér ógnarleg stórvirki.
Örvar þínar eru hvesstar,
þær hæfa hjarta fjandmanna konungsins,
þjóðir falla að fótum þér.