Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 2. mars – Opb 18.21–19.5

Sterkur engill tók upp stein, eins og mikinn kvarnarstein, kastaði í hafið og sagði: „Svo voveiflega mun Babýlon kollvarpast, borgin mikla, svo að engar menjar skulu eftir verða. Og hörpusláttur og sönglist, pípuhljómur og lúðurþytur skal ekki framar heyrast í þér og engir iðnaðarmenn munu framar stunda iðn sína í þér og kvarnarhljóð skal eigi framar heyrast í þér. Lampaljós skal eigi framar í þér lýsa og raust brúðguma og brúðar skal eigi framar heyrast í þér. Kaupmenn þínir voru höfðingjar jarðarinnar og allar þjóðir leiddust í villu af töfrum þínum. Í borginni fannst blóð spámanna og heilagra og allra þeirra sem drepnir hafa verið á jörðunni.“

Eftir þetta heyrði ég sem sterkan ym mikils fjölda á himni. Hann sagði:
Hallelúja! Hjálpræðið, dýrðin og mátturinn kemur frá Guði vorum.
Sannir og réttlátir eru dómar hans.
Hann hefur dæmt skækjuna miklu sem spillti jörðunni með saurlifnaði sínum
og hann hefur refsað henni fyrir að deyða þjóna sína.

Og aftur var sagt: „Hallelúja! Reykurinn frá henni stígur upp um aldir alda.“ Og öldungarnir tuttugu og fjórir og verurnar fjórar féllu fram og tilbáðu Guð sem í hásætinu situr og sögðu: „Amen, hallelúja!“

Og rödd barst frá hásætinu er sagði: „Lofsyngið Guði vorum, allir þjónar hans sem óttist hann, smáir og stórir.“

Biblíulestur 10. mars – Opb 3.14–22

Engli safnaðarins í Laódíkeu skaltu rita: Þetta segir hann sem er amen, votturinn trúi og sanni, upphaf sköpunar Guðs. Ég þekki verkin þín, þú ert hvorki kaldur né heitur. Betur [...]

Biblíulestur 9. mars – 1Pét 5.1–14

Öldungana ykkar á meðal hvet ég sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig á hlutdeild í þeirri dýrð sem mun opinberast: Verið hirðar þeirrar hjarðar sem Guð [...]

Biblíulestur 8. mars – Mrk 9.33–42

Þeir komu til Kapernaúm. Þegar þeir voru komnir inn spurði Jesús þá: „Hvað voruð þið að ræða á leiðinni?“ En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á [...]

Biblíulestur 8. mars – 1Kor 6.1–11

Hvernig getur nokkur ykkar, sem á sökótt við annan, fengið af sér að fara með málið fyrir dóm ranglátra en ekki heilagra? Eða vitið þið ekki að heilagir eiga að [...]

Biblíulestur 7. mars – Jes 8.23-9:6

Engin björgun býðst þeim sem er ofurseldur algjörum sorta. Ekki skal myrkur vera í landinu sem fyrr var í nauðum statt. Fyrrum lét hann vansæmd koma yfir Sebúlonsland og Naftalíland [...]

Fara efst