Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 1. mars – Mrk 10.46–52

Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. Þegar hann heyrði að þar færi Jesús frá Nasaret tók hann að hrópa: „Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!“ Margir höstuðu á hann að hann þegði en hann hrópaði því meir: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
Jesús nam staðar og sagði: „Kallið á hann.“
Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: „Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.“
Blindi maðurinn kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.
Jesús spurði hann: „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“
Blindi maðurinn svaraði honum: „Rabbúní, að ég fái aftur sjón.“
Jesús sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“
Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.

Biblíulestur 7. mars – Jes 50.4–11

Drottinn Guð hefur gefið mér lærisveinatungu svo að ég lærði að styrkja hinn þreytta með orðum. Á hverjum morgni vekur hann eyra mitt svo að ég hlusti eins og lærisveinn. [...]

Biblíulestur 6. mars – Jóh 12.34–50

Mannfjöldinn svaraði honum: „Lögmálið segir okkur að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?“ Þá sagði Jesús: [...]

Biblíulestur 6. mars – Jes 49.1–10

Hlýðið á mig, eylönd, hyggið að, fjarlægu þjóðir. Drottinn hefur kallað mig allt frá móðurlífi, nefnt mig með nafni frá því ég var í móðurkviði. Hann gerði munn minn sem [...]

Biblíulestur 5. mars – Mík 5.1–8

En þú, Betlehem í Efrata, ein minnsta ættborgin í Júda, frá þér læt ég þann koma er drottna skal í Ísrael. Ævafornt er ætterni hans, frá ómunatíð. Því verður þjóðin [...]

Biblíulestur 5. mars – Mrk 10.46–52

Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. Þegar hann heyrði að [...]

Fara efst