Biblíulestur 1. mars – Mrk 10.46–52
Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. Þegar hann heyrði að þar færi Jesús frá Nasaret tók hann að hrópa: „Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!“ Margir höstuðu á hann að hann þegði en hann hrópaði því meir: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
Jesús nam staðar og sagði: „Kallið á hann.“
Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: „Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.“
Blindi maðurinn kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.
Jesús spurði hann: „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“
Blindi maðurinn svaraði honum: „Rabbúní, að ég fái aftur sjón.“
Jesús sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“
Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.
Biblíulestur 4. mars – 4Mós 24.10–19
Reiði Balaks blossaði nú upp gegn Bíleam, hann sló saman lófum og sagði við hann: „Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en þú hefur blessað þá þrisvar. Farðu [...]
Biblíulestur 4.3.2023 – Slm 44.10–27
En nú hefur þú hafnað oss og niðurlægt, þú fórst ekki út með hersveitum vorum. Þú lést oss hörfa undan óvinum og hatursmenn vorir taka herfang. Þú fórst með oss [...]
Biblíulestur 3. mars – Jóh 2.13–22
Nú fóru páskar Gyðinga í hönd og Jesús hélt upp til Jerúsalem. Þar sá hann í helgidóminum þá er seldu naut, sauði og dúfur og víxlarana sem sátu þar. Þá [...]
Biblíulestur 3. mars – Jes 42.1–9
Sjá þjón minn sem ég styð, minn útvalda sem ég hef velþóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun færa þjóðunum réttlæti. Hann kallar ekki og hrópar ekki [...]
Biblíulestur 2. mars – Slm 71.1–8
Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Frelsa mig, bjarga mér eftir réttlæti þínu, hneig eyra þitt að mér og hjálpa mér. Ver mér verndarbjarg, [...]
Biblíulestur 2. mars – Lúk 23.18–38
En þeir æptu allir: „Burt með hann, gefðu okkur Barabbas lausan!“ En honum hafði verið varpað í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt sem varð í borginni og manndráp. Pílatus talaði enn [...]