Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 29. mars – Mrk 14.3–9

Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. En þar voru nokkrir er gramdist þetta og þeir sögðu sín á milli: „Til hvers er þessi sóun á smyrslum? Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum.“ Og þeir atyrtu hana.
En Jesús sagði: „Látið hana í friði! Hvað eruð þið að angra hana? Gott verk gerði hún mér. Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur og getið gert þeim gott nær þið viljið en mig hafið þið ekki ávallt. Hún gerði það sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrir fram smurt líkama minn til greftrunar. Sannlega segi ég ykkur: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess sem hún gerði og hennar minnst.“

Biblíulestur 29. júlí – Okv 14.20–35

Fátæklingurinn verður jafnvel hvimleiður jafningja sínum en auðmaðurinn eignast fjölda vina. Sá sem fyrirlítur vin sinn drýgir synd en lánsamur er sá sem sýnir nauðstöddum miskunn. Vissulega villast þeir sem [...]

Fara efst