Biblíulestur 28. mars – Okv 28.14–28
Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig
en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu.
Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn,
svo er ranglátur drottnari yfir magnlítilli þjóð.
Skilningssljór höfðingi er harður kúgari
en langlífur verður sá sem hatar rangfenginn auð.
Sá maður, sem blóðsök hvílir á,
er á flótta fram á grafarbakkann,
enginn aðstoði hann.
Sá sem breytir ráðvandlega mun frelsast
en sá fellur í gryfju sem beitir undirferli.
Sá sem yrkir land sitt mettast af brauði
en sá sem sækist eftir hégóma mettast af fátækt.
Áreiðanlegur maður blessast ríkulega
en sá sem fljótt vill verða ríkur sleppur ekki við refsingu.
Hlutdrægni er röng
en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.
Nískur maður er á þönum eftir auði
og veit ekki að örbirgðin mun elta hann uppi.
Sá sem ávítar mann öðlast síðar meiri hylli
en tungumjúkur smjaðrari.
Sá sem rænir foreldra sína og segir: „Það er engin synd,“
er lagsbróðir eyðandans.
Ágjarn maður vekur deilur
en þeim sem treystir Drottni farnast vel.
Sá sem treystir á eigið hyggjuvit er heimskingi
en sá sem breytir viturlega mun bjargast.
Sá sem gefur fátækum líður engan skort
en þeim sem byrgir augu sín verður víða formælt.
Þegar vegur ranglátra vex fela menn sig
en þegar þeir tortímast fjölgar réttlátum.
Biblíulestur 27. júlí – Hós 2.4–13
Kærið móður yðar, kærið, því að hún er ekki eiginkona mín og ég ekki eiginmaður hennar. Hún skal fjarlægja skækjumerkið af andliti sínu og hórumerkið milli brjósta sinna. Annars fletti [...]
Biblíulestur 26. júlí – Hós 1.1–2.3
1. kafliOrð Drottins sem barst Hósea Beerísyni þegar Ússía, Jótam, Akas og Hiskía voru konungar í Júda og Jeróbóam Jóasson var konungur í Ísrael. Drottinn tók nú að tala til [...]
Biblíulestur 25. júlí – 3Mós 19.9–18
Þegar þið skerið upp kornið í landi ykkar skaltu hvorki hirða af ysta útjaðri akurs þíns né dreifarnar á akri þínum. Þú skalt hvorki tína allt í víngarði þínum né [...]
Biblíulestur 24. júlí – 2Mós 23.1–13
Þú skalt ekki breiða út róg. Þú skalt ekki leggja þeim lið sem fer með rangt mál með því að bera ljúgvitni. Þú skalt ekki fylgja meirihlutanum til illra verka. [...]
Biblíulestur 23. júlí – Jóh 6.30–35
Þeir spurðu hann þá: „Hvaða tákn getur þú sýnt okkur svo að við trúum? Hvað afrekar þú? Feður okkar átu manna í eyðimörkinni eins og ritað er: Brauð af himni [...]
Biblíulestur 22.7.2023 – Slm 55.1–16
Hlýð, Guð, á bæn mína, fel þig eigi þegar ég sárbæni þig. Hlusta og svara mér, ég er órór og kveina, skelfingu lostinn yfir hrópum óvinarins, ásókn hins óguðlega, því [...]