Biblíulestur 27. mars – Est 1.21–2.7
Þessi ráð féllu konungi og höfðingjum hans vel í geð og gerði konungur eins og Memúkan hafði lagt til. Hann lét senda boð um öll héruð konungsríkisins, til hvers héraðs með letri þess héraðs og hverrar þjóðar á máli þeirrar þjóðar, að sérhver karlmaður skyldi vera húsbóndi á heimili sínu hver sem tunga hans væri.
Síðar, er Xerxes konungi rann reiðin, minntist hann Vastí og athæfis hennar og einnig dómsins sem hún hafði hlotið. Hirðsveinar konungs sögðu þá: „Nú skal leitað að ungum og fögrum meyjum handa konunginum. Konungur setji til þess menn í öllum héruðum ríkisins að safna fallegum, ungum meyjum í kvennabúr konungs í virkisborginni Súsa. Þar skal Hegaí, geldingur konungs, sá sem gætir kvennanna, hafa umsjón með þeim og þeim skulu fengin fegrunarsmyrsl. Sú stúlka, sem gengur í augun á konungi, skal síðan verða drottning í stað Vastí.“ Þetta féll konungi vel og fór hann að þessu ráði.
Í virkisborginni Súsa var Gyðingur að nafni Mordekaí, sonur Jaírs, sonar Símeí, sonar Kíss, af ætt Benjamíns. Var hann í hópi þeirra sem Nebúkadnesar Babýloníukonungur tók til fanga og flutti burt frá Jerúsalem ásamt Jekonja Júdakonungi. Mordekaí hafði tekið í fóstur Hadassa, það er Ester, dóttur föðurbróður síns, en hún átti hvorki föður né móður. Hún var fallega vaxin og fríð sýnum og hafði Mordekaí tekið hana sér í dóttur stað þegar faðir hennar og móðir önduðust.
Biblíulestur 21. júlí – Ef 2.1–10
Þið voruð dauð vegna afbrota ykkar og synda sem þið lifðuð í áður samkvæmt aldarhætti þessa heims að vilja valdhafans í loftinu, anda þess, sem nú verkar í þeim, sem [...]
Biblíulestur 20. júlí – Róm 5.12–21
Syndin kom inn í heiminn með einum manni og dauðinn með syndinni. Þannig er dauðinn runninn til allra manna því að allir syndguðu þeir. Víst var syndin í heiminum áður [...]
Biblíulestur 19. júlí – Róm 5.1–11
Réttlætt af trú höfum við því frið við Guð sakir Drottins vors Jesú Krists. Hann hefur veitt okkur aðgang að þeirri náð sem við lifum í og við fögnum í [...]
Biblíulestur 18. júlí – Róm 3.21–31
En nú hefur Guð opinberað réttlæti sitt sem lögmálið og spámennirnir vitna um og byggist ekki á lögmáli. Það er: Réttlæti trúarinnar sem Guð gefur öllum þeim sem trúa á [...]
Biblíulestur 17. júlí – Róm 3.1–20
Hvað hefur þá Gyðingurinn fram yfir aðra? Eða hvert er gagn umskurnarinnar? Mikið á allan hátt. Fyrst og helst er það að Guð hefur trúað Gyðingum fyrir orðum sínum. Sumir [...]
Biblíulestur 16. júlí – Matt 5.17–19
Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla. Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða [...]