Biblíulestur – 12. október – Lúk 14.1–11
Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar og höfðu menn gætur á honum. Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur. Jesús tók þá til máls og sagði við lögvitringana og faríseana: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki?“
Þeir þögðu við. En hann tók á honum, læknaði hann og lét hann fara. Og Jesús mælti við þá: „Ef einhver ykkar á asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp þótt hvíldardagur sé?“
Þeir gátu engu svarað þessu.
Jesús gaf því gætur hvernig boðsgestir völdu sér hefðarsætin, tók dæmi og sagði við þá: „Þegar einhver býður þér til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti. Svo getur farið að manni þér fremri að virðingu sé boðið og sá komi er ykkur bauð og segi við þig: Þoka fyrir manni þessum. Þá verður þú með kinnroða að taka ysta sæti. Far þú heldur er þér er boðið og set þig í ysta sæti svo að sá sem bauð þér segi við þig þegar hann kemur: Vinur, flyt þig hærra upp! Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum er sitja til borðs með þér. Því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“
Biblíulestur 2. mars – Lúk 23.18–38
En þeir æptu allir: „Burt með hann, gefðu okkur Barabbas lausan!“ En honum hafði verið varpað í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt sem varð í borginni og manndráp. Pílatus talaði enn [...]
Biblíulestur 1. mars – 2Tím 2.1–13
Þú barnið mitt, Tímóteus, ver styrkur í náðinni sem veitist í Kristi Jesú. Það sem þú heyrðir mig tala í margra votta viðurvist skalt þú fá í hendur trúum mönnum [...]
Biblíulestur 1. mars – Lúk 23.1–17
Þá stóð upp allur skarinn og færði Jesú fyrir Pílatus. Þeir tóku að ákæra hann og sögðu: „Við höfum komist að raun um að þessi maður leiðir þjóð okkar afvega, [...]
Biblíulestur 28. febrúar – Jes 53.4–12
En vorar þjáningar voru það sem hann bar og vor harmkvæli er hann á sig lagði. Vér álitum honum refsað, hann sleginn og niðurlægðan af Guði. En hann var særður [...]
Biblíulestur 27. febrúar – Jes 52.13–53.3
52. kafliSjá, þjónn minn mun giftusamur verða, hann mun verða mikill og veglegur og hátt upp hafinn. Eins og marga hryllti við honum, svo afskræmdur var hann ásýndum að vart [...]
Biblíulestur 26. febrúar – Lúk 22.31–34
Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. En ég hef beðið fyrir þér að trú þín þrjóti ekki. Og [...]