Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð þegar Sifítar komu og sögðu við Sál: „Davíð felur sig hjá oss.“
Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu,
rétt hlut minn með mætti þínum.
Guð, heyr þú bæn mína,
ljá eyra orðum munns míns.
Erlendir fjandmenn hafa ráðist gegn mér
og ofbeldismenn sækjast eftir lífi mínu,
eigi hafa þeir Guð fyrir augum. (Sela)
Sjá, Guð er hjálp mín,
Drottinn er styrkur minn.
Bölið bitni á fjandmönnum mínum,
eyddu þeim, Drottinn, sakir trúfesti þinnar.
Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir,
lofa nafn þitt, Drottinn, sem er gott,
því að það hefur frelsað mig úr hverri neyð
og auga mitt hlakkar yfir fjandmönnum mínum.