Biblíulestur 31. mars – Est 3.1–11
Eftir þennan atburð hækkaði Xerxes konungur Haman, son Hamdata og afkomanda Agags, í tign, hóf hann til mikilla metorða og setti hann yfir aðra höfðingja sína. Að skipan konungs skyldu allir þjónar hans í hallarhliði falla á kné og lúta Haman. En Mordekaí féll hvorki á kné né laut honum. Þá spurðu þjónar konungs í hallarhliði: „Hvers vegna hefurðu skipun konungs að engu?“ Dag eftir dag höfðu þeir orð á þessu en hann skeytti því ekki. Þeir sögðu Haman frá þessu til að sjá hvort Mordekaí kæmist upp með þetta en hann hafði sagt þeim að hann væri Gyðingur. Er Haman sá að Mordekaí féll hvorki á kné né laut honum varð hann afar reiður. En honum þótti lítið unnið við að leggja hendur á Mordekaí einan. Hafði honum verið skýrt frá þjóðerni Mordekaí og hugleiddi Haman nú hvernig gereyða mætti samlöndum Mordekaí, öllum Gyðingum í ríki Xerxesar.
Í fyrsta mánuði tólfta stjórnarárs Xerxesar, mánuðinum nísan, var hlutkesti varpað, svonefndum púr, að Haman viðstöddum. Með hlutkestinu skyldi ákvarðaður bæði mánuður og mánaðardagur. Hlutir féllu þannig að upp kom þrettándi dagur tólfta mánaðar ársins en sá mánuður nefnist adar.
Þá sagði Haman við Xerxes konung: „Meðal þjóðanna hvarvetna í héruðum ríkis þíns er ein þjóð sem hefur dreifst víða og sker sig úr öllum öðrum þjóðum. Lög þessarar þjóðar eru frábrugðin lögum allra annarra þjóða, lög konungs virðir hún að vettugi. Verður ekki við það unað að konungur láti þetta óátalið. Sé það konungi þóknanlegt þarf að gefa út skriflega tilskipun um að eyða þessari þjóð. Og sjálfur skal ég greiða fjárheimtumönnunum tíu þúsund talentur silfurs sem færðar verði í sjóði konungs.“
Þá dró konungur innsiglishring sinn af hendi sér og fékk hann Agagsniðjanum Haman, syni Hamdata og hatursmanni Gyðinga. „Haltu silfrinu,“ sagði konungur við Haman, „og farðu með þessa þjóð eins og þú vilt.“
Biblíulestur 14. ágúst – 1Tím 6.3–10
Ef einhver fer með villukenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því sem trú okkar kennir, þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt. Hann [...]
Biblíulestur 13. ágúst – Matt 11.16–24
Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum sem á torgum sitja og kallast á: Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. [...]
Biblíulestur 12.8.2023 – Slm 56.1–14
Til söngstjórans. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð þá er Filistear gripu hann í Gat. Ver mér náðugur, Guð, því að menn ofsækja mig, allan daginn þrengja bardagamenn [...]
Biblíulestur 11. ágúst – Post 4.32–37
En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál og enginn þeirra taldi neitt vera sitt er hann átti heldur höfðu menn allt sameiginlegt. Postularnir [...]
Biblíulestur 10. ágúst – Okv 28.14–28
Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu. Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er ranglátur drottnari [...]
Biblíulestur 9. ágúst – Job 42.1–6
Job svaraði Drottni og sagði: Nú skil ég að þú getur allt, ekkert, sem þú vilt, er þér um megn. Hver myrkvar ráðsályktunina án þekkingar? Ég hef talað af skilningsleysi [...]