Biblíulestur 1. apríl – Est 3.12–4.3
Á þrettánda degi fyrsta mánaðarins var riturum konungs stefnt saman og tilskipun skráð sem í öllu var eftir fyrirmælum Hamans. Var hún síðan send öllum skattlandsstjórum konungs, svo og héraðshöfðingjum og leiðtogum sérhverrar þjóðar, til hvers héraðs með letri því sem þar var notað og til hverrar þjóðar á tungu hennar. Var tilskipunin gefin í nafni Xerxesar konungs og staðfest með innsigli hans. Bréfin voru síðan send með hraðboðum til allra héraða konungsríkisins. Fyrirmælin voru þau að á einum degi, þrettánda degi tólfta mánaðarins, mánaðarins adar, skyldi eyða öllum Gyðingum, deyða þá og tortíma þeim, ungum og öldnum, jafnt konum sem börnum, en hald skyldi lagt á eigur þeirra. Þá skyldi einnig gefið út eftirrit af bréfinu. Lagagildi skyldi það hafa í hverju héraði og það birt öllum þjóðunum þannig að þær yrðu viðbúnar þessum degi. Að boði konungs héldu hraðboðar af stað í skyndi, jafnskjótt og lögin höfðu verið kynnt í virkisborginni Súsa. Þeir konungur og Haman settust að drykkju en í Súsa voru menn felmtri slegnir.
Er Mordekaí frétti hvernig málum var komið reif hann klæði sín og klæddist sekk og ösku, gekk síðan út í miðja borgina, kveinaði hátt og beisklega og gekk að hallarhliðinu. Inn um það mátti enginn fara sem klæddur var hærusekk. Í öllum héruðum varð mikill harmur meðal Gyðinga þegar fregnaðist um boð konungs og tilskipun. Þeir föstuðu, grétu, börðu sér á brjóst og flestir gerðu sér flet úr sekk og ösku.
Biblíulestur 20. ágúst – Lúk 7.36–50
Farísei nokkur bauð Jesú til máltíðar og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs. En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís að hann [...]
Biblíulestur 19.8.2023 – Slm 57.1–12
Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð þá er hann flýði inn í hellinn undan Sál. Ver mér náðugur, Guð, ver mér náðugur því að hjá þér leita ég [...]
Biblíulestur 18. ágúst – Jer 14.10–18
Svo segir Drottinn um þessa þjóð: Þeir hafa gaman af að eigra um stefnulaust, þeir hvíla ekki fæturna. En Drottinn gleðst ekki yfir þeim, nú minnist hann sektar þeirra og [...]
Biblíulestur 17. ágúst – Lúk 21.5–19
Einhverjir höfðu orð á að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: „Þeir dagar koma að allt sem hér blasir við verður lagt í rúst, ekki steinn [...]
Biblíulestur 16. ágúst – Lúk 12.1–12
Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig farísea sem er hræsnin. [...]
Biblíulestur 15. ágúst – Jes 51.9–16
Vakna þú, vakna, íklæð þig styrk, þú armur Drottins, vakna þú eins og í árdaga, á tímum löngu genginna kynslóða. Varst það ekki þú sem hjóst Rahab og lagðir drekann [...]