Einhverjir höfðu orð á að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: „Þeir dagar koma að allt sem hér blasir við verður lagt í rúst, ekki steinn yfir steini eftir.“
En þeir spurðu Jesú: „Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að það sé að koma fram?“
Hann svaraði: „Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og: Tíminn er í nánd! Fylgið þeim ekki. En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara en endirinn kemur ekki samstundis.“
Síðan sagði Jesús við þá: „Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum en ógnir og tákn mikil á himni.
En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns. Þetta veitir yður tækifæri til að bera mér vitni. En festið það vel í huga að vera ekki fyrir fram að hugsa um hvernig þér eigið að verjast því ég mun gefa yður orð og visku sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið. Jafnvel foreldrar, systkin, frændfólk og vinir munu framselja yður og sumir yðar munu líflátnir. Og allir munu hata yður af því að þér trúið á mig en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar. Verið þrautseigir, með því munuð þér ávinna lífið.