Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 2. apríl – Lúk 22.14–20

Og er stundin var komin gekk Jesús til borðs og postularnir með honum. Og hann sagði við þá: „Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður áður en ég líð. Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki.“
Þá tók hann kaleik, gerði þakkir og sagði: „Takið þetta og skiptið með yður. Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins fyrr en Guðs ríki kemur.“
Og hann tók brauð, gerði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: „Þetta er líkami minn sem fyrir yður er gefinn. Gerið þetta í mína minningu.“ Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: „Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði sem fyrir yður er úthellt.

Biblíulestur 26. ágúst – Okv 15.1–11

Mildilegt svar stöðvar bræði en fúkyrði vekja reiði. Af tungu hinna vitru drýpur þekking, af munni heimskingjanna streymir flónskan. Augu Drottins eru alls staðar og vaka yfir vondum og góðum. [...]

Biblíulestur 21. ágúst – Jer 27.12–22

Sedekía Júdakonungi flutti ég þennan sama boðskap. Ég sagði: Beygið hálsinn undir ok konungsins í Babýlon. Þjónið honum og þjóð hans svo að þér haldið lífi. Hvers vegna viltu falla [...]

Fara efst